Hverastrýturnar í Eyjafirði : náttúrutengd köfunarferðaþjónusta og köfunarkennsla

Ritgerðin er lokuð til 2022 Í Eyjafirði eru tvo hverastrýtusvæði, annað er staðsett undan bænum Ystuvík í Grýtubakkahreppi og hitt er undan Arnarnesi í Hörgárbyggð. Neðansjávarhverastrýtur er að finna víðs vegar um heim en það sem gerir hverastrýturnar í Eyjafirði sérstakar er að þær eru á grunnsævi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir 1961-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/14087
Description
Summary:Ritgerðin er lokuð til 2022 Í Eyjafirði eru tvo hverastrýtusvæði, annað er staðsett undan bænum Ystuvík í Grýtubakkahreppi og hitt er undan Arnarnesi í Hörgárbyggð. Neðansjávarhverastrýtur er að finna víðs vegar um heim en það sem gerir hverastrýturnar í Eyjafirði sérstakar er að þær eru á grunnsævi og einu hverastrýturnar í heiminum sem hægt er að kafa að. Strýturnar í Eyjafirði þykja af þessum sökum einstakar og með áhugaverðustu köfunarstöðunum á Íslandi. Sævör ehf. er köfunarþjónustufyrirtæki sem sinnir hvorttveggja náttúrutengdri köfunarferðaþjónustu og köfunarkennslu og hefur aðsetur á Hjalteyri við Eyjafjörð. Erlendur Bogason, kafari, aðaleigandi Sævarar ehf. fann stóru hverastrýtuna við Ystuvík árið 1998. Erlendur hefur stundað rannsóknir á dýra- og plöntulífi á og við strýturnar ásamt því að stuðla að því á sínum tíma að fá þær friðlýstar. Þær eru einu friðuðu náttúruminjarnar í hafi við Ísland. Viðskiptaáætlun þessi gengur út á að markaðssetja hverastrýturnar í Eyjafirði sem aðal köfunarstaði fyrirtækisins. Íslenskir og erlendir fjölmiðlar hafa leitað til Sævarar ehf. og birt fréttamyndir af strýtunum og starfsemi fyrirtækisins í netmiðlum, í tímaritum og sjónvarpi. Viðskiptahugmyndin gengur meðal annars út á að nýta þessa umfjöllun til þess að auglýsa strýturnar, fyrirtækið og starfsemi þess. Rekstrarforsendur byggja á stuttri rekstrasögu Sævarar ehf. á þessum sviðum þjónustunnar og gera ráð fyrir hóflegri aukningu viðskiptavina til fyrirtækisins frá ári til árs. Niðurstöður fjárhagsáætlunarinnar sýna að hugmyndin er arðbær þar sem eignafjárstaðan er stígandi út stefnumótunartímabilið. Þar sem markmið viðskiptaáætlunarinnar er, að treysta starfsvettvang Erlendar Bogasonar með því að efla þá þætti þjónustunnar sem snúa að köfunarkennslu og náttúrutengdri köfunarferðaþjónustu, má segja að það nái fram að ganga In Eyjafjordur, northern Iceland, there are two hydrothermal vents areas, one is located at the east side of the fjord (65°49,73 N and 18°06,69 W) and the other one is to the north of the ...