Summary: | Þetta lokaverkefni í byggingariðnfræði gengur út á það að hanna og teikna einbýlishús á einni hæð úr timbri á steyptum sökklum með innbyggðri bílageymslu fyrir einn bíl. Húsið á að hafa þrjú svefnherbergi og eiga a.m.k. tvö þeirra að vera samliggjandi. Teiknihefti inniheldur aðaluppdrætti, byggingaruppdrætti, deiliuppdrætti, burðarvirkisuppdrætti og lagnauppdrætti. Skýrsla inniheldur verklýsingu, tilboðs/kostnaðaráætlun, burðarþolsútreikninga, varmatapsútreikninga, lagnaútreikninga, þak og niðurfallsútreikninga og loftun þaks. Skýrsla inniheldur einnig útfyllta umsókn um byggingarleyfi, mæli og hæðarblað ásamt gátlista byggingafulltrúa
|