Andleg líðan kvenna á meðgöngu : samanburður á ráðgerðri og óráðgerðri þungun

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna andlega líðan kvenna á meðgöngu og bera saman við ráðgerða og óráðgerða þungun og vildu rannsakendur einnig vita hvort þörf væri á mismunandi þjónustu fyrir þessa hópa. Ýmsar erlendar rannsóknir sýna að þunglyndiseinkenni eru algengari á meðgöngu en eftir barns...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðrún Björnsdóttir, Ingibjörg Ösp Ingólfsdóttir, Sigurborg Bjarnadóttir, Unnur María Pétursdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1404
Description
Summary:Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna andlega líðan kvenna á meðgöngu og bera saman við ráðgerða og óráðgerða þungun og vildu rannsakendur einnig vita hvort þörf væri á mismunandi þjónustu fyrir þessa hópa. Ýmsar erlendar rannsóknir sýna að þunglyndiseinkenni eru algengari á meðgöngu en eftir barnsburð en hér á landi er einungis gerð kembileit að þunglyndiseinkennum eftir barnsburð. Notast var við megindlegt rannsóknarsnið og þátttakendur voru valdir með þægindaúrtaki. Konur sem leituðu til mæðraverndar Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri (HAK), á tímabilinu 20. janúar 2005 til 20. mars 2005, fengu afhentan spurningalista sem samsettur var úr Edinborgar-þunglyndiskvarðanum eða Edinburgh Postnatnal Depression Scale (EPDS), lýðfræðilegum spurningum og spurningum sem rannsakendur þróuðu sjálfir. Við tölfræðilega úrvinnslu var notast við hugbúnaðinn Statistical Package for Social Sciences (SPSS) og töflureikninn Microsoft Excel. Rannsóknarspurningarnar voru tvær: - Hvernig er andleg líðan kvenna á meðgöngu, samkvæmt EPDS kvarðanum, sem leita til mæðraverndar HAK? - Er munur á andlegri líðan kvenna á meðgöngu, samkvæmt EPDS kvarðanum, sem leita til mæðraverndar HAK, eftir því hvort þungunin var ráðgerð eða ekki? Tilgáta rannsakenda: - Andleg líðan kvenna á meðgöngu, sem ráðgera ekki þungun, er verri en hjá konum sem ráðgera þungun. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar virtist andleg líðan kvenna sem leituðu til mæðraverndar HAK ekki nógu góð. Þriðjungur kvennanna skoruðu níu stig eða fleiri á EPDS iv kvarðanum, en þær konur sem skora níu stig eða fleiri eru líklegar til að upplifa andlega vanlíðan. Konur sem ráðgera ekki þungun eru líklegri til að skora hærra á EPDS kvarðanum, virðast hafa minni stuðning, minni menntun og búa við verri fjárhag. Það má því leiða líkur að því að þessar konur geti þurft meiri stuðning frá heilsugæslunni en þær sem ráðgera þungun. Rannsakendur telja í ljósi niðurstaðna að bæta megi þjónustu við þungaðar konur með því að hefja kembileit að þunglyndiseinkennum á meðgöngu en þannig má draga ...