International child custody disputes in Iceland : an analysis of Icelandic private international law

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Síðustu áratugi hafa fólksflutningar milli landa aukist jafnt og þétt og æ fleiri börn hafa tengsl við fleiri en eitt land. Þegar forsjárdeila hefur tengsl við fleiri en eitt land má kalla hana alþjóðlega forsjárdeilu. Alþjóðlegar forsjá...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birna Ágústsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:English
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1403
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Síðustu áratugi hafa fólksflutningar milli landa aukist jafnt og þétt og æ fleiri börn hafa tengsl við fleiri en eitt land. Þegar forsjárdeila hefur tengsl við fleiri en eitt land má kalla hana alþjóðlega forsjárdeilu. Alþjóðlegar forsjárdeilur heyra undir alþjóðlegan einkamálarétt, en reglur þess sviðs réttarins í hverju ríki fyrir sig ákvarða lögsögu þess ríkis í forsjárdeilum sem hafa erlend tengsl. Reglur alþjóðlegs einkamálaréttar segja einnig til um lagaval í slíkum deilum sem og um viðurkenningu og fullnustu erlendra forsjárákvarðana. Alþjóðlegur einkamálaréttur setur þannig afskiptum ríkis að alþjóðlegum forsjárdeilum takmörk. Íslenskar reglur á sviði alþjóðlegs einkamálaréttar, er varða forsjárdeilur, má finna í landslögum sem og þjóðréttarsamningum sem Ísland hefur gerst aðili að. Nokkrir þjóðréttarsamningar á þessu sviði hafa fengið stöðu landslaga á Íslandi, í heild eða að hluta, og ganga framar öðrum landslögum eigi þeir við. Aðrar réttarheimildir, svosem fordæmi og venjuréttur, kunna einnig að fela í sér reglur alþjóðlegs einkamálaréttar á þessu sviði. Ólíkar reglur geta gilt um lögsögu íslenskra dómstóla eftir því hvort foreldrar eru giftir eður ei. Þegar forsjárdeila er hluti hjúskaparmáls er lögsaga ákvörðuð eftir reglum sem gilda um hjúskaparmál, en í öðrum tilfellum fer lögsaga eftir reglum sem sérstaklega eru sniðnar að forsjárdeilum. Ólíklegt er þó að lagaval fari að reglum er gilda um hjúskaparmál séu málin rekin samhliða, en reglur um lagaval í alþjóðlegum forsjárdeilum eru fremur einfaldar hér á landi. Þjóðréttarsamningar á þessu sviði innihalda hvað helst reglur um viðurkenningu og fullnustu erlendra forsjárákvarðana. Að meginreglu er viðhorf gagnvart viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana og dóma neikvætt hér á landi nema heimild sé fyrir slíku í lögum. Hér fer á eftir frekari umfjöllun um reglur alþjóðlegs einkamálaréttar er gilda um alþjóðlegar forsjárdeilur á Íslandi.