Viðhald malbiks á Akureyri - Reiknilíkan

Viðhald malbikaðra gatna er endalaust verkefni. Spálíkön eru af ýmsu tagi, allt frá sjónrænu mati yfir í flókin reiknilíkön. Markmið þessa verkefnis er að nýta gögn um hvenær götur á Akureyri voru malbikaðar, finna samspilið við umferðarþunga og áætla viðhaldsþörf næstu ára. Með því að afla gagna um...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jónas Valdimarsson 1974-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13994
Description
Summary:Viðhald malbikaðra gatna er endalaust verkefni. Spálíkön eru af ýmsu tagi, allt frá sjónrænu mati yfir í flókin reiknilíkön. Markmið þessa verkefnis er að nýta gögn um hvenær götur á Akureyri voru malbikaðar, finna samspilið við umferðarþunga og áætla viðhaldsþörf næstu ára. Með því að afla gagna um sem flestar malbikanir (helst allar), skrá í gagnagrunn, finna sem flestar nothæfar upplýsingar um umferðaþunga og tengja við malbikunargagnagrunninn er ætlunin að búa til reynslulíkan. Líkanið verður síðan látið keyra í gegnum allt gatnakerfið og áætlað hversu stórt flatarmál gatna þurfi að malbika á hverju ári. Gagnagrunninn má svo einnig nýta til að finna hversu mikið malbik hefur verið notað til að yfirbræða götur að meðaltali síðastliðna áratugi. Allar þessar upplýsingar ættu að skila sér í betri meðferð fjármuna og betri vinnu við áætlanagerð hjá Akureyrarbæ. Niðurstaða reynslulíkansins var að það var fortíðarvandi til staðar, þ.e.a.s. margar götur sem hefði átt að vera búið að malbika. Með sjónrænu mati á viðkomandi götum reyndist líkanið eitthvað vanmeta uppsafnaða vandann.