Sameiningarmöguleikar Siglufjarðar : samanburður á sameiningu Siglufjarðar annars vegar við Ólafsfjörð og hins vegar við önnur átta sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu

Sameiningarumræða meðal sveitarfélaga í Eyjafirði hefur verið mikil undanfarin ár meðal annars vegna þróunar í samgöngumálum. Með Héðinsfjarðargöngum mun Siglufjörður tengjast Eyjafjarðarsvæðinu á öflugan og áhrifaríkan hátt. Göngin eru gríðarlegar samgöngubætur og opna Siglfirðingum ýmsa möguleika,...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjarkey Rut Gunnlaugsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1398
Description
Summary:Sameiningarumræða meðal sveitarfélaga í Eyjafirði hefur verið mikil undanfarin ár meðal annars vegna þróunar í samgöngumálum. Með Héðinsfjarðargöngum mun Siglufjörður tengjast Eyjafjarðarsvæðinu á öflugan og áhrifaríkan hátt. Göngin eru gríðarlegar samgöngubætur og opna Siglfirðingum ýmsa möguleika, meðal annars til samstarfs við önnur sveitarfélög á svæðinu. Með samstarfi má lækka kostnað og bæta þjónustu svo eitthvað sé nefnt. Þá tóku nýlega gildi breytingar á kjördæmaskipan þar sem Siglufjörður færðist í kjördæmi Norðurlands eystra. Þessar breytingar eru einnig hvati til samstarfs við önnur sveitarfélög á svæðinu. Samstarf er hins vegar ekki eini möguleikinn í stöðunni, sameining sveitarfélaga er ennþá öflugri leið heldur en samstarf til þess að ná fram hagræðingu og sparnaði. Nokkrir sameiningarmöguleikar hafa verið nefndir og voru sameiningar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar annars vegar og Eyjafjarðarsvæðisins hins vegar kannaðar í þessu verkefni. Þegar taka á ákvörðun um hvaða leið sé best að fara þarf að taka tilliti til áhrifa sameininganna á helstu þætti sveitarfélags og íbúa þess. Rannsókn var gerð á áhrifum sameininganna tveggja á þjónustu, stjórnkerfi og rekstur með áherslu á hvernig þau áhrif koma til með að birtast Siglfirðingum. Af þessum þáttum liggur munurinn á sameiningunum tveimur í fjárhagslegum áhrifum þeirra, önnur áhrif eru illmælanleg eða talin það sambærileg að þau vega ekki þungt þegar taka á ákvörðun um sameiningu sveitarfélaga. Sameiningarnar tvær hafa mest áhrif á útgjöld til sameiginlegs kostnaðar. Til skamms tíma er það eini málaflokkurinn sem hægt er að ná verulegum sparnaði í. Sameiginlegur kostnaður hjá sameinuðum Eyjafirði yrði 30.373 kr. á íbúa en hjá sameinuðu sveitarfélagi Siglufjarðar og Ólafsfirði yrði hann 47.441 kr. á íbúa. Niðurstaðan er sú að sameining Eyjafjarðarsvæðisins er fýsilegri kostur. Lykilorð: Sameining sveitarfélaga, þjónusta, fjármál, stjórnsýsla, stærðarhagkvæmni.