Menntun til sjálfbærrar þróunar – í hverju felst hún? : um gerð og notkun greiningarlykils til að greina slíka menntun

Tilgangur þessarar greinar er að auka skilning á markmiðum og inntaki menntunar til sjálfbærrar þróunar. Í rannsóknar- og þróunarverkefninu GETA til sjálfbærni – menntun til aðgerða, sem unnið er að á tímabilinu 2007–2010 af fræðafólki við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, voru námskrár og ön...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Norðdahl 1956-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Bak
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13978
Description
Summary:Tilgangur þessarar greinar er að auka skilning á markmiðum og inntaki menntunar til sjálfbærrar þróunar. Í rannsóknar- og þróunarverkefninu GETA til sjálfbærni – menntun til aðgerða, sem unnið er að á tímabilinu 2007–2010 af fræðafólki við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, voru námskrár og önnur menntastefnuskjöl greind til að finna í þeim ákvæði um menntun til sjálfbærrar þróunar. Við þetta starf var þróað verkfæri, greiningarlykill, sem byggir á sjö skilgreindum þáttum. Þeir eru: gildi, viðhorf og tilfinningar gagnvart náttúru; þekking sem nýtist til skynsamlegrar nýtingar náttúrunnar; velferð og lýðheilsa; lýðræði og þátttaka í samfélaginu, geta til aðgerða; jafnrétti og fjölmenning; alþjóðavitund og hnattrænn skilningur; efnahagsþróun og framtíðarsýn. Lykillinn er túlkun, þeirra sem standa að fyrrgreindu rannsóknarverkefni, á stefnumótun opinberra aðila um hvað felst í menntun til sjálfbærrar þróunar. Í greininni er gerð grein fyrir hugmyndafræðinni á bak við greiningarlykilinn. Einnig er fjallað um hvernig hann hefur gagnast og hvernig hann gæti nýst áfram til að ýta undir menntun sem hjálpar fólki að tileinka sér sjálfbæra lífshætti og framtíðarsýn. Kristín Norðdahl er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.