Stjórnun breytinga : viðbrögð starfsfólks við skipulagsbreytingum

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Miklar breytingar í innra og ytra umhverfi fyrirtækja kalla á stöðuga stjórnun breytinga. Markmiðið með verkefninu er að sýna yfirmönnum fyrirtækja fram á mikilvægi þess að stjórna breytingum á markvissan hátt, svo hægt sé að forðast nei...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Rut Steindórsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1392
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Miklar breytingar í innra og ytra umhverfi fyrirtækja kalla á stöðuga stjórnun breytinga. Markmiðið með verkefninu er að sýna yfirmönnum fyrirtækja fram á mikilvægi þess að stjórna breytingum á markvissan hátt, svo hægt sé að forðast neikvæð viðbrögð og andstöðu starfsfólks. Hægt er að skipta skipulagsbreytingum, sem gerðar eru innan fyrirtækja í tvo flokka: stigvaxandi og róttækar. Samruni er róttæk breyting sem hefur mikil áhrif á starfsfólk. Rannsóknir sýna að breytingar eru mun líklegri til að ganga eftir og heppnast ef starfsfólki er gert kleift að taka þátt í breytingaferlinu frá byrjun og vera með í skipulagningu og framkvæmd. Breytingaferli byggist á að afþýða núverandi ástand, breyta því og að lokum frysta ástandið aftur. Gerð er tilviksrannsókn í Grófargili ehf., bókhaldsfyrirtæki á Akureyri. Gott hefði verið fyrir stjórnendur Grófargils ehf. og Fjárstoðar ehf. að mynda teymi þar sem starfsfólk hefðu unnið saman að samruna og stefnumótun nýs fyrirtækis. Það hefði komið í veg fyrir óvissu og ótta starfsfólks við fyrirhugaðar breytingar. Það er mjög mikilvægur þáttur að hafa samráð við starfsfólk, upplýsa það og hafa með í samrunaferli, en þó er það ekki eitt og sér lykillinn að vel heppnaðri sameiningu. Lykilhugtök eru: skipulagsbreyting, stjórnun, menning, starfsmaður og hegðun.