Samanburður á vettvangsathugunum og loftmyndatúlkun við mat á gæðum hjólaleiða. Dæmi frá Akureyri

Á síðustu árum hefur hjólreiðafólki fjölgað á landinu öllu og hefur mikið verið unnið að bættum hjólreiðasamgöngum í Reykjavík til þess að koma til móts við þessa fjölgun. Slík uppbygging hefur ekki átt sér stað enn sem komið er á Akureyri en eitt af deilimarkmiðum aðalskipulags Akureyrarbæjar 2005–...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Mazmanian Róbertsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13859
Description
Summary:Á síðustu árum hefur hjólreiðafólki fjölgað á landinu öllu og hefur mikið verið unnið að bættum hjólreiðasamgöngum í Reykjavík til þess að koma til móts við þessa fjölgun. Slík uppbygging hefur ekki átt sér stað enn sem komið er á Akureyri en eitt af deilimarkmiðum aðalskipulags Akureyrarbæjar 2005–2018 er að draga úr umferð og bæta aðstæður fyrir hjólreiðar. Markmið rannsóknar sem framkvæmd var á Akureyri haustið 2012, var að prófa aðferð með notkun loftmynda sem hægt er að bera saman við vettvangsaðferð við mat á gæðum hjólaleiða. Önnur aðferðin byggir á vettvangsathugun þar sem huglægt mat er notað við skráningu. Hin aðferðin byggir á lofmyndatúlkun með notkun loftmynda ásamt hæðarlíkani í LUK. Leitast var við að svara því hvort mikill munur væri á milli aðferða og hvort loftmyndatúlkun án verulegrar vettvangsvinnu sé raunhæfur kostur við mat á gæðum hjólaleiða. Að lokum voru niðurstöður settar fram myndrænt og aðferð við kortlagningu kynnt. Rannsóknin leiddi í ljós að kostir og gallar fylgja báðum aðferðum. Vettvangsathugun er mun tímafrekari aðferð, en með loftmyndatúlkun er hægt að greina stærra svæði á skemmri tíma. Nákvæmari niðurstöður fást hinsvegar með vettvangsaðferð og er því æskilegt að samnýta báðar aðferðir eða nota loftmyndatúlkun við grunnvinnslu og ljúka vinnslu með vettvangsathugun. Lykilorð: Akureyri, hjólreiðar, skipulag, landupplýsingakerfi, samgöngur. In the last few years the number of cyclists have increased in the country as a whole and a lot of emphasis on enhancing bicycle transportation in Reykjavík as a means of catering to this increase. Such groundwork has not, as of yet, been laid in Akureyri, but one of the objectives of the Akureyri municipality planning for 2005-2018 is to decrease traffic and improve conditions for bicycle riding. The objective of a study performed in Akureyri in the fall of 2012 was to try a method with the use of aerial photograph to be used in comparison with field studies to determine the quality of bicycle routes. The aerial photograph methods is ...