Sveitarfélagið Garður sem áfangastaður ferðamanna

Ferðaþjónusta í dreifbýli hefur farið vaxandi síðustu ár og eru litlu bæjarfélögin á landsbyggðinni orðin áhugaverðir áfangastaðir fyrir ferðamenn en þar spilar náttúra og menning stóran þátt í upplifun ferðamanna. Í Sveitarfélaginu Garði sem staðsett er á Suðurnesjunum hefur lítil sem engin ferðaþj...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir 1981-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13845
Description
Summary:Ferðaþjónusta í dreifbýli hefur farið vaxandi síðustu ár og eru litlu bæjarfélögin á landsbyggðinni orðin áhugaverðir áfangastaðir fyrir ferðamenn en þar spilar náttúra og menning stóran þátt í upplifun ferðamanna. Í Sveitarfélaginu Garði sem staðsett er á Suðurnesjunum hefur lítil sem engin ferðaþjónustu verið á síðustu árum. Vitundarvakning er þó á meðal bæjarbúa og er mikill áhugi á því að byggja upp öfluga þjónustu fyrir ferðamenn. Meginmarkmið með þessari rannsókn var að athuga hvort Sveitarfélagið Garður gæti orðið áhugaverður áfangastaður fyrir ferðamenn og hvort það er tilbúið að taka á móti auknum fjölda ferðamanna. Í rannsókninni var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem fyrirliggjandi gögn voru nýtt ásamt hálfstýrðum viðtölum. Unnið var með lífsferilslíkan áfangastaðar eftir fræðimanninn R.W. Butler, til að átta sig á hvaða stigi sveitarfélagið er í uppbyggingunni og hvert það eigi að stefna. Einnig var stuðst við framboðsmódel C. Gunn, til að átta sig á því hvaða þjónustu sveitarfélagið þarf að hafa til að geta tekið á móti auknum fjölda ferðamanna. Niðurstöður sýna fram á að sveitarfélagið Garður er á byrjunarreit og á langt í land með að ná tilsettum árangri og þarf þátttaka bæjarbúa og samvinna við nágrannasveitarfélögin vera góð allt frá hugmyndavinnu að framkvæmd. Tourism in Icelands rural areas has been growing in recent years and small towns and villages have become interesting tourist destinations, where nature and culture play a big role in the experience of the tourist. The municipality of Garður is located on Suðurnes and has had virtually no tourism in the recent years. However, awareness is rising among local people and an interest to build up a powerful service for travellers is growing. The main objective of this study was to determine whether the municipality Garður could become an interesting destination for tourists and whether it is prepared to receive an increased number of tourists. This study uses qualitative research methods where existing data is utilized along ...