Heildarmat í grunnskólum Reykjavíkur 2007–2010

Í þessari grein verður fjallað um verkefnið Heildarmat á skólastarfi sem hófst fyrir þremur árum á Menntasviði Reykjavíkur. Sagt verður frá undirbúningi matsins í starfshópi sem stofnaður var 2006 og samstarfi við skólastjórnendur í borginni sem tóku þátt í að móta verkefnið. Framkvæmd matsins er lý...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birna Sigurjónsdóttir 1946-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13797
Description
Summary:Í þessari grein verður fjallað um verkefnið Heildarmat á skólastarfi sem hófst fyrir þremur árum á Menntasviði Reykjavíkur. Sagt verður frá undirbúningi matsins í starfshópi sem stofnaður var 2006 og samstarfi við skólastjórnendur í borginni sem tóku þátt í að móta verkefnið. Framkvæmd matsins er lýst og greint frá því hvert þekking og fyrirmyndir hafa verið sóttar. Heildarmatinu er fyrst og fremst ætlað að styrkja og efla skólastarf og stuðla að umbótum. Í kjölfar matsins gera skólastjórar umbótaáætlun sem byggist á niðurstöðum þess og skila henni til fræðslustjóra sem síðan fylgist með framgangi umbótaverkefna í eitt ár á eftir. Greint er frá skólaheimsókn og gagnaöflun í skólanum, mati á gæðum kennslustunda og hvernig það birtist í matsskýrslu skólans. Loks er fjallað um helstu takmarkanir matsins sem felast m.a. í því að heildarmatið er framkvæmt af starfsmönnum aðalskrifstofu Menntasviðs undir stjórn og á ábyrgð fræðslustjóra í Reykjavík.