Leikir til náms : ævintýraspilið

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.–prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vorið 2003. Verkefnið skiptist í ritgerð og námsefni. Í ritgerðinni er fjallað um leiki barna til náms og gildi þeirra fyrir þroska auk þess...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elva Eir Þórólfsdóttir, Valgerður Lilja Daníelsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1379
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.–prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vorið 2003. Verkefnið skiptist í ritgerð og námsefni. Í ritgerðinni er fjallað um leiki barna til náms og gildi þeirra fyrir þroska auk þess sem helstu kenningar um leiki eru kynntar sem og rannsóknir sem gerðar hafa verið á þeim. Því næst er fjallað um námspil og gildi þeirra í kennslu. Greint er frá helstu námspilum sem eru til í völdum grunnskólum á Akureyri. Einnig er gerð grein fyrir notkun námspila í þessum sömu skólum en þær upplýsingar eru byggðar á formlegri könnun sem lögð var fyrir kennara skólanna. Fjölbreytileiki í kennslu er mikilvægur og er því fjallað um hvernig er hægt að auka fjölbreytni með samþættingu námsgreina. Sérstaklega er fjallað um samþættingu stærðfræði og íslensku þar sem námsefnið er byggt á samþættingu þessara tveggja námsgreina. Námsefnið skiptist í kennsluáætlun og námspil byggt á Grimmsævintýrum. Farið er í fjögur ævintýri í kennsluáætluninni og hvernig hægt er að kenna stærðfræði út frá þeim. Þegar búið er að fara í gegnum kennsluætlunina er spilið spilað. Spilaborðið byggist upp á einum aðalhring þar sem leysa á íslenskuþrautir úr sömu ævintýrum og í kennsluáætlun. Út frá aðalhring er farið í fjóra ævintýraskóga þar sem hver og einn tilheyrir ákveðnu ævintýri. Inni í skógunum þarf að leysa stærðfræði-þrautir. Mælt er með því að gerð verði sérstök námskrá um leiki í grunnskólum þannig að aðgengi verði auðveldara að því hvernig megi nýta leiki í skólastarfinu og þeim markmiðum sem stefnt skuli að.