Stuðla matreiðslumeistarar á veitingahúsum markvisst að upplifun gesta sinna?

Verkefnið er lokað til 30.09.2014 Hugtakið matarferðamennska hefur rutt sér til rúms á síðustu árum um allan heim. Ísland er þar engin undantekning og nauðsynlegt verður, við þróun íslenskrar ferðaþjónustu á komandi árum, að horfa vakandi augum til þessa þáttar ferðaþjónustu. Í þessari ritgerð er ho...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðlaugur Sæmundsson 1960-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13768
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 30.09.2014 Hugtakið matarferðamennska hefur rutt sér til rúms á síðustu árum um allan heim. Ísland er þar engin undantekning og nauðsynlegt verður, við þróun íslenskrar ferðaþjónustu á komandi árum, að horfa vakandi augum til þessa þáttar ferðaþjónustu. Í þessari ritgerð er horft til þess hvort matreiðslumeistarar á veitingahúsum í Reykjavík séu meðvitað að leggja sig eftir því að skapa góða og jákvæða upplifun fyrir erlenda ferðamenn með matreiðslu og framreiðslu sinni. Rætt var við fimm matreiðslumenn á jafnmörgum reykvískum veitingahúsum. Niðurstaðan var að sköpun upplifunar fyrir gesti veltur á samspili margra þátta og metur rannsakandiþað svo að allir viðmælendur hafi verið mjög meðvitaðir um mikilvægi þess að standa vel að því að skapa sérstaka upplifun fyrir gestina og hafi unnið markvisst að því að ná því takmarki. Hins vegar nálguðust þeir það takmark út frá faglegu sjónarhorni matreiðslumenntunar sinnar en ekki frá hugtakinu matarferðamennska. In recent years, there has been a global increase in the importance of the concept of culinary tourism. Iceland is no exception in this respect and future developments of the country‘s tourism-related services must take aim of changing trends in this field. This thesis seeks to answer the question whether the chefs of Reykjavik restaurants are consciously striving, through their culinary expertise and food service, to create a good and positive experience for foreign tourists in the country. Interviews were conducted with five chefs in an equal number of restaurants. The results of this research show that the creation of tourist experiences depends on a range of differentfactors. The interviewees were all aware of the importance of creating a unique and positive experience for their guests and seemed to have worked systematically towards reaching that goal. Their approach, however, is largely influenced by their professional education as chefsrather than focusing on the concept of culinary tourism.