Þróun fiskneyslu : Akureyri og nágrenni

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í líftækni við Háskólann á Akureyri. Rannsóknarspurningar sem leitað var svara við eru eftirfarandi: • Hversu mikil er fiskneysla fólks á Akureyri og í nágrenni bæjarfélagsins? • Hverjar eru...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórunn Guðlaugsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1371
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í líftækni við Háskólann á Akureyri. Rannsóknarspurningar sem leitað var svara við eru eftirfarandi: • Hversu mikil er fiskneysla fólks á Akureyri og í nágrenni bæjarfélagsins? • Hverjar eru ástæður þess að fiskur er hafður á borðum? • Er að aukast bilið milli kynslóða í neyslu fisks eins og eldri rannsóknir hafa sýnt? • Hver er þekking á heilnæmi fisks hjá hinum almenna neytenda? Verkefnið inniheldur jafnframt fræðilega umfjöllun um innihaldsefni og heilnæmi fisks ásamt umfjöllun um niðurstöður rannsókna sem sýna fram á heilnæmi hans. Fiskur er fæða sem sýnt hefur verið fram á að er mjög heilnæmur og að hann inniheldur m.a.ómega-3 fitusýrur sem eru góðar fyrir hjartað ásamt próteinum og peptíðum? sem einnig eru talin hafa jákvæð áhrif á heilsu manna. Fiskur hefur verið mikilvægur hluti þess matar sem á borð hefur verið lagður á íslenskum heimildum frá örófi alda og á hugsanlega þátt í háum meðalaldri Íslendinga. Nú er þó ljóst að eitt okkar einkennismerkja, að vera mikil fiskneysluþjóð, er nánast horfið á ótrúlega skömmum tíma. Miklar breytingar hafa orðið á lífsháttum á stuttum tíma sem fylgt hafa velmegunarsjúkdómar sem fjallað er um ásamt umfjöllun um möguleika fisks sem markfæði Þróun fiskneyslu er skoðuð með því að horfa um öxl á þróun fiskveiða og á niðurstöður um fiskneyslu úr neyslurannsóknum hérlendis. Til að varpa ljósi á þróun fiskneyslu úr fleiri áttum var upplýsinga aflað um fjölda fiskmáltíða og matreiðsluaðferðir í mötuneytum í grunnskólum Akureyrar sem ná ekki viðmiðum Lýðheilsustöðvar. Einnig er fjallað um tölur um framboð á fiski á mörkuðum.