Þynning og dreifing á skólpi frá Akureyrarbæ út í Eyjafjörð

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefnið fjallar um þynningu og dreifingu á skólpi frá Akureyrarbæ út í Eyjaförð. Meginmarkmiðið var að athuga hvort reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp stæðist umhverfismörk fyrir saurgerla miðað við núvernadi losun og einnig...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Davíð Viðarsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1370
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefnið fjallar um þynningu og dreifingu á skólpi frá Akureyrarbæ út í Eyjaförð. Meginmarkmiðið var að athuga hvort reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp stæðist umhverfismörk fyrir saurgerla miðað við núvernadi losun og einnig við losun frá áætlaðri útrás. Verkefnið var unnið í samstarfi við Akureyrarbæ, Hafrannsóknarstofnun, Háskólann á Akureyri og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra. Gerð var ferilprófun með ferilefninu flúorescein til þess að athuga þynningu og dreifingu á skólpi á núverandi útrás og úr framtíðarútrás. Einnig var kortlagður botn á fyrirhuguðu lagnarstæði til mats á dreifingu skólpsins og til að meta hentuga lagningarleið fyrir áætlaða útrás. Meginniðurstöður ferilprófanna voru þær að núverandi útrás stenst ekki umhverfismörk reglugerðarinnar þar sem skólpmengaður sjór nær að landi við strendur milli Sandgerðisbótar og Krossaness, en þar eru hentug útvistarsvæði. Hins vegar stenst áætluð útrás reglugerðina en kortlagning fyrir áætlað útrás sýndi að útrásarpípan liggur yfir sker sem er illmögulegt að leggja hana yfir. Lykilorð: Ferilprófun, Flúorescein, Kortlagning sjávarbotns, Skólp.