Starfstengt diplómunám fyrir fólk með þroskahömlun

Haustið 2007 hófst tveggja ára starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun við Kennaraháskóla Íslands. Meginmarkmið námsins var tvíþætt. Annars vegar að undirbúa nemendur til afmarkaðra starfa á þeim vettvangi sem þroskaþjálfabraut menntar nemendur til. Um var að ræða störf á leikskólum, frís...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðrún Valgerður Stefánsdóttir 1954-, Vilborg Jóhannsdóttir 1953-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13677
Description
Summary:Haustið 2007 hófst tveggja ára starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun við Kennaraháskóla Íslands. Meginmarkmið námsins var tvíþætt. Annars vegar að undirbúa nemendur til afmarkaðra starfa á þeim vettvangi sem þroskaþjálfabraut menntar nemendur til. Um var að ræða störf á leikskólum, frístundaheimilum, bókasöfnum, í félagsmiðstöðvum og á vettvangi fatlaðs fólks. Hins vegar var að því stefnt að gera nemendum kleift að öðlast hagnýta þekkingu og félagslega færni í námsumhverfi án aðgreiningar í því skyni að greiða fyrir aukinni þátttöku þeirra í samfélaginu (Guðrún V. Stefánsdóttir og Vilborg Jóhannsdóttir, 2007). Námið var skilgreint sem rannsóknartengt tilraunaverkefni sem fylgt var eftir með eigindlegri rannsókn sem hér er til umfjöllunar. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að þróa námið, stuðning við nemendur og stuðla að enn frekara námi án aðgreiningar. Í þeim tilgangi var reynt að öðlast skilning á upplifun nemenda í diplómanámi og að fá fram sýn aðstandenda, mentora (samnemendur í Kennaraháskóla Íslands og á Menntavísindasviði Háskóla Íslands eftir 1. júlí 2008 þegar Kennaraháskólinn og Háskóli Íslands sameinuðust), leiðbeinenda í starfsnámi og háskólakennara. Í þessari grein er ætlunin fyrst og fremst að kynna diplómanámið og skýra frá reynslu nemenda, aðstandenda og mentora af náminu. Sú gagnasöfnun sem hér er byggt á fór fram með einstaklingsviðtölum og samtölum í rýnihópum nemenda og aðstandenda þeirra. Þá skrifuðu mentorar skýrslur um reynslu sína og nemendur og aðstandendur þeirra gerðu skriflegt mat á náminu. Helstu niðurstöður benda til að hjá nemendum ríki almenn ánægja með námið. Flestir voru sammála um að stærsti ávinningurinn hafi verið félagsleg þátttaka og samvera með öðrum háskólanemendum. Jafnframt töldu flestir nemendur og aðstandendur þeirra að námið hefði aukið þeim sjálfstæði, sjálfsvirðingu og sjálfsöryggi. A semi professional diploma program for people with intellectual disabilities was offered for the first time during the fall of 2007 at the Iceland University of ...