Eru sjómenn virkir þátttakendur í umönnun og uppeldi barna sinna: Sjómenn og föðurhlutverkið

Tilgangur rannsóknarinnar var að öðlast aukinn skilning og varpa ljósi á upplifun og reynslu sjómanna af föðurhlutverkinu og möguleika þeirra á að taka þátt í umönnun og uppeldi barna sinna á fyrsta æviskeiði þeirra. Skoðað var hverjar aðstæður og möguleikar sjómanna til að taka þátt í umönnun og up...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hafdís Erla Jóhannsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13554
Description
Summary:Tilgangur rannsóknarinnar var að öðlast aukinn skilning og varpa ljósi á upplifun og reynslu sjómanna af föðurhlutverkinu og möguleika þeirra á að taka þátt í umönnun og uppeldi barna sinna á fyrsta æviskeiði þeirra. Skoðað var hverjar aðstæður og möguleikar sjómanna til að taka þátt í umönnun og uppeldi ungra barna væru, hvort og hvernig þeir taka þátt í meðgöngunni og hvort þeir séu viðstaddir fæðingu yngsta barns. Einnig var kannað hvernig sjómenn nýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Spurningakönnun var lögð fyrir sjómenn sem starfa hjá Samherja á Akureyri. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að sjómenn eru virkir þátttakendur í umönnun og uppeldi barna sinna, þegar frá er talin þátttaka í meðgöngunni. Þeir telja að sama skapi starf sitt hvorki hafa slæm né góð áhrif á þátttöku sína. Þættir líkt og aldur, menntun, hjúskaparstaða eða lengd sjóferða virðast hafa lítil áhrif á þátttöku sjómanna í umönnun og uppeldi barna sinna en einstaklingsbundnir þættir annars vegar og þættir sem ákvarðast af lögum hins vegar virðast hafa meiri áhrif. Í ljós kom að tekjur eru helsti kosturinn við sjómannsstarfið en fjarvera helsti gallinn.