Summary: | Verkefnið er lokað Þetta verkefni felst í að lýsa og bera saman starfssemi og vöxt þriggja Internet banka á Íslandi. Internet bankaviðskipti urðu vinsæl á íslenska markaðinum fyrir um fimm árum síðan. Það hefur verið nauðsynlegt fyrir alla banka að vera með sína eigin Internet banka til að svara harðri samkeppni á markaðinum. Þessi skýrsla byrjar á því að segja sögu bankaviðskipta og þróunina sem átti sér stað til að gera bankakerfið eins og það er í dag. Síðan koma til umræðu mismunandi form rafrænna bankaviðskipta og er farið nánar út í aðalumræðuefnið, eða Internet banka. Sagt er frá staðreyndum varðandi vöxt á Internet bankakerfinu á Íslandi sem og í heiminum Eftir þetta, þrír af fjórum stærstu bönkum landsins eru rannsakaðir og Internet bankarnir þeirra skilgreindir, sem og starfssemi þeirra, eiginleikar, markaðssetning og vöxtur í venjulega bönkunum samanborið við vöxt í Internet bönkunum þeirra. Sagt er frá nokkrum tegundir áhrifa og starfssemi í Internet banka heiminum og eftir það stutt umræða um upplýsingarnar í köflunum á undan. Samanburður á Internet bönkum er gerður, varðandi mismunandi eiginleika og markaðssetningu og mismur á vexti og hvaða áhrifaþættir hafa áhrif á vöxtinn. Að lokum eru niðurstöður kynntar. Lykilorð: Internet, banki, vöxtur, notkun, þróun, samanburður.
|