„Pepsi max fituhlunkar." Samfélagsleg greining á fitufælni og afleiðingum hennar

Megintilgangur þessa verkefnis er að kynna hugtakið fitufælni fyrir lesendum, í hverju hún felist og hverjar afleiðingar hennar eru. Verkefnið er rannsóknarritgerð þar sem stuðst er við ritaðar heimildir víðs vegar að, meðal annars í formi ritrýndra greina og fræðibóka. Fitufælni er skilgreind sem s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Tara Margrét Vilhjálmsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13546
Description
Summary:Megintilgangur þessa verkefnis er að kynna hugtakið fitufælni fyrir lesendum, í hverju hún felist og hverjar afleiðingar hennar eru. Verkefnið er rannsóknarritgerð þar sem stuðst er við ritaðar heimildir víðs vegar að, meðal annars í formi ritrýndra greina og fræðibóka. Fitufælni er skilgreind sem sjúklegur ótti við líkamsfitu eða feitleika. Fitufælni hefur margvíslegt sögulegt og samfélagslegt samhengi og verður gerð grein fyrir því í verkefninu. Samkvæmt gagnrýnum nálgunum í félagsráðgjöf er slíkt samhengi talið mikilvægt til að varpa betur ljósi á hugtakið. Afleiðingar fitufælni eru taldar birtast í fitufordómum, neikvæðri líkamsímynd og átröskunum. Frekari afleiðingar þessara birtingarmynda eru ennfremur taldar neikvæðar og alvarlegar, og samkvæmt rannsóknum hafa þær allar fundist hér á landi. Færð verða rök fyrir því að afleiðingar fitufælni skuli teljast lýðheilsuvandamál sem sporna þurfi gegn. Farið verður nánar í hlutverk félagsráðgjafans hvað það varðar og fjallað um kenninga- og vinnuramma sem geta nýst honum í þeim tilgangi, bæði á micro- og macrostigi. Lykilorð: Fitufælni, fitufordómar, líkamsímynd, átröskun, félagsráðgjöf. The main goal of this essay is to introduce the concept of fat phobia and its implications. The essay is a research project which relies on written material, mostly in the form of peer-reviewed articles and books. Fat phobia is defined as a pathological fear of fatness and has diverse historical and societal contexts which will be further clarified. According to radical approaches in social work this is considered crucial to enhance understanding of the concept. The consequences of fat phobia are considered to be fat prejudice, negative body image and eating disorders. The implications of these consequences are furthermore negative and critical, and all of them can be found in Iceland. Considering this, fat phobia should be regarded as a public health problem. The role of the social worker regarding this will be considered and a theory- and practice frame presented which can be ...