Fjölskyldustefna fyrirtækja og stofnana á Suðurnesjum: Samþætting vinnu og fjölskylduábyrgðar

Til þess að gera starfsfólki betur kleift að samþætta vinnu og fjölskylduábyrgð hafa mörg fyrirtæki og stofnanir mótað sérstaka fjölskyldustefnu. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig fyrirtæki og stofnanir á Suðurnesjum taka tillit til fjölskylduábyrgðar starfsmanna sinna. Markmiðið var...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sæunn Hafdís Oddsdóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13520
Description
Summary:Til þess að gera starfsfólki betur kleift að samþætta vinnu og fjölskylduábyrgð hafa mörg fyrirtæki og stofnanir mótað sérstaka fjölskyldustefnu. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig fyrirtæki og stofnanir á Suðurnesjum taka tillit til fjölskylduábyrgðar starfsmanna sinna. Markmiðið var tvíþætt: Í fyrsta lagi að skoða hvort þau hafi mótað sér formlega fjölskyldustefnu. Í öðru lagi að skoða hvaða úrræði þau bjóða starfsmönnum sínum til að auðvelda samþættingu vinnu og fjölskylduábyrgðar. Þar sem fyrirliggjandi rannsóknir á samþættingu vinnu og fjölskylduábyrgðar hafa flestar verið framkvæmdar á höfuðborgarsvæðinu ákvað höfundur að rannsaka fyrirtæki og stofnun á Suðurnesjum. Tekin voru viðtöl við forsvarsmenn starfsmannamála viðkomandi fyrirtækja og stofnunar. Einnig voru greind gögn svo sem starfsmannastefnur, jafnréttisáætlanir og fjölskyldustefnur þeirra. Rannsóknin gefur ákveðnar vísbendingar um hvernig fyrirtæki og stofnanir á Suðurnesjum gera starfsmönnum sínum kleift að samþætta vinnu og fjölskylduábyrgð. Niðurstöður leiddu í ljós að tvö fyrirtæki hafa mótað sér formlega fjölskyldustefnu en annað þeirra birtir hana sem hluta af jafnréttisstefnu. Eitt fyrirtækjanna kveður á um samþættingu vinnu og fjölskylduábyrgðar í starfsmannastefnu. Stofnunin, sem er bæjarstofnun í Reykjanesbæ, vinnur eftir formlegri fjölskyldustefnu bæjarins. Öll fyrirtækin bjóða starfsmönnum sínum upp á úrræði til þess að samþætta vinnu og fjölskylduábyrgð. Eðli starfanna ræður mestu hvernig starfsmenn geta nýtt sér þau úrræði sem boðið er upp á. Alls staðar er reynt, eins og mögulegt er, að koma til móts við þarfir starfsmanna hvað varðar fjölskylduábyrgð. In order to better enable work-family balance for their staff, many organisations have set themselves a family policy. The aim of this research is to explore how businesses and local authorities in the Suðurnes area of Iceland are addressing the work-balance needs of their employees. The research had two objectives. The first objective was to determine whether the ...