Summary: | Skaðaminnkun er hugmyndafræði á sviði vímuefnafræða sem hefur það markmið að draga úr skaða vímuefnanotkunar. Í þessari rannsókn var sjónum beint að nálgunum skaðaminnkunar gagnvart sprautufíklum, vegna þess mikla skaða sem neysla þeirra getur leitt af sér. Rannsóknin beindist að þekkingu og viðhorfum heilbrigðisfagfólks á skaðaminnkun með sprautufíklum. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi viðtala og voru viðeigandi þátttakendur valdir samkvæmt markmiðsúrtaki. Þátttakendur voru átta og höfðu það sameiginlegt að vera heilbrigðisfagfólk sem starfaði á stofnunum sem tengjast sprautufíklum. Framkvæmd rannsóknarinnar stóð frá september til nóvember 2012. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þátttakendur höfðu allir jákvætt viðhorf gagnvart skaðaminnkun en enginn þeirra taldi að næg þekking væri á henni hér á landi. Margir þátttakendur töldu að fordómar væru við lýði gagnvart skaðaminnkun hjá heilbrigðisstarfsfólki, sem mætti rekja til þekkingarleysis. Fannst öllum þátttakendum að skaðaminnkun ætti að vera hluti af stefnumótun í vímuefnamálum hér á landi. Í rannsókninni komu fram vísbendingar um að þátttakendur leggðu ólíkan skilning í hugtakið skaðaminnkun, sem veikir áreiðanleika þessara niðurstaða. Harm reduction is a paradigm in the field of chemical dependency, which aims at reducing the damages of drug use. In this research the focus was on harm reduction approaches with injection drug users because of the harmful consequences such drugs use can have on the user. The research focused on the knowledge and attitudes of health professionals towards harm reduction measures with injection drug users. Qualitative research methods were used in the form of interviews. The participants were eight and chosen by purposive sampling. All of them worked at institutions that render assistance to intravenous drug users in Iceland. The research was conducted from September to November 2012. The main conclusion from this research was that all participants had a positive attitude towards harm ...
|