Könnun á stöðu og þjónustu félagsráðgjafar við bráðadeildir FSA

Höfundur kannaði stöðu félagsráðgjafar við bráðadeildir Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Eigindlegar samræður voru við 22 meðrannsakendur. Þar af voru samræður við sjö sjúklinga bráðadeilda og tvo aðstandendur. Hugarflugsfundir voru með fjórum rýnihópum sem samanstóðu af 13 þverfaglegum tilvísandi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Brynja Óskarsdóttir 1950-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13485
Description
Summary:Höfundur kannaði stöðu félagsráðgjafar við bráðadeildir Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Eigindlegar samræður voru við 22 meðrannsakendur. Þar af voru samræður við sjö sjúklinga bráðadeilda og tvo aðstandendur. Hugarflugsfundir voru með fjórum rýnihópum sem samanstóðu af 13 þverfaglegum tilvísandi samstarfsaðilum af sjúkrahúsinu. Staða félagsráðgjafar var skoðuð út frá fræðilegum hugmyndum um læknisfræðilegt (e. biological/medical approach) andstætt sálfélagslegt (e. psychosocial approach) heilbrigðilíkan. Sjúkrahúss-félagsráðgjöf starfar á snertifleti þessara heilbrigðilíkana og hefur myndað lífsálfélagslegt (e. biopsychosocial approch) heilbrigðilíkan. Staða félagsráðgjafar við FSA var rannsökuð út frá því sjónarhorni. Fræðikenningar um samvinnu fagaðila í heilbrigðisþjónustu voru skoðaðar. Einnig kenningar um notendasamráð í ljósi breytinga sem nú eru að gerast á alþjóðavettvangi og innan íslensks velferðarsamfélags og heilbrigðisþjónustu. Skipulag heilbrigðisþjónustu setur sjúkrahússfélagsráðgjöf mörk. Rannsóknin leggur grunn að símati gagnreyndrar þjónustu en kenningar um kerfisbundna greiningu þjónustukerfa voru athugaðar með þetta í huga. Rannsóknin sýndi að notendur þjónustunnar og samstarfsaðilar eru sammála um nauðsyn þess að félagsráðgjafaþjónusta sé við bráðadeildir sjúkrahússins. Það veitir öryggi að hafa samvinnu við og greiðan aðgang að slíkri þjónustu í nærsamfélagi.