Innleiðing upplýsingakerfa : breytingastjórnun

Verkefnið er lokað Möguleg tengsl innleiðingar upplýsingakerfa og breytingastjórnunar og möguleikann á notkun breytingastjórnunar í þeim tilgangi að bæta árangur innleiðingar er efni sem áhugavert er rannsaka. Í upphafi voru lagðar fram eftirfarandi rannsóknarspurningar.  Hvað eigi fræði breytingas...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Úlfhildur Úlfarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2002
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1346
Description
Summary:Verkefnið er lokað Möguleg tengsl innleiðingar upplýsingakerfa og breytingastjórnunar og möguleikann á notkun breytingastjórnunar í þeim tilgangi að bæta árangur innleiðingar er efni sem áhugavert er rannsaka. Í upphafi voru lagðar fram eftirfarandi rannsóknarspurningar.  Hvað eigi fræði breytingastjórnunar og upplýsingakerfa sameiginlegt?  Hver eru áhrif fyrirtækjamenningar á breytingar?  Hversu mikilvæg eru samskipti innan fyrirtækisins á breytingartímum og á hvaða hátt tengjast þau innleiðingu upplýsingakerfa?  Hefur þátttaka starfsmannsins áhrif á innleiðingu upplýsingakerfa?  Hvers vegna kemur upp mótþrói við breytingum og hvað geta stjórnendur gert til að yfirvinna hann? Til að leita svara við þessum spurningum var fræðilegur grunnur upplýsingakerfa og breytingastjórnunar rannsakaður og leitað eftir mögulegum tengingum þar á milli. Auk þess var fylgt eftir innleiðingu á upplýsingakerfi hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og tekin viðtöl við starfsmenn sem tengdust henni. Niðurstaðan varð sú að tenging milli fræðanna fólst í þáttöku starfsmanna og lagt er fram innleiðingarlíkan sem er byggt á þeim. Fræðilega getur breytingastjórnun bætt árangur af innleiðingu upplýsingakerfis í starfsemi fyrirtækis en það kostar góðan undirbúning og fyrirbyggjandi aðgerðir. Lykilorð: Breytingastjórnun, innleiðing, upplýsingakerfi.