Ávöxtun skulda- og hlutabréfa

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verðbréfaviðskipti eru í eðli sínu áhættusöm vegna þess að ekki er hægt að vita nákvæmlega hver ávöxtun af hverju hluta- eða skuldabréfi verður þegar viðskiptin fara fram. Ástæða þess er að verðþróun verðbréfa er háð mörgum samverkandi þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Steinn Viðar Gunnarsson, Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2002
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1345
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verðbréfaviðskipti eru í eðli sínu áhættusöm vegna þess að ekki er hægt að vita nákvæmlega hver ávöxtun af hverju hluta- eða skuldabréfi verður þegar viðskiptin fara fram. Ástæða þess er að verðþróun verðbréfa er háð mörgum samverkandi þáttum. Helstu áhrifaþættir á verðþróun tengjast innra umhverfi fyrirtækisins sem og því efnahagsumhverfi sem það starfar innan. Framtíðarspá á ávöxtun af einstaka verðbréfi verður því erfið og ávallt er til staðar viss óvissa um þá ávöxtun sem kemur til með að verða af verðbréfinu eftir kaupin. Þessi óvissa er þó mismikil eftir því í hvers konar verðbréfi fjárfest er. Almennt eru hlutabréf áhættumeiri fjárfesting en skuldabréf og gera fjárfestar því hærri ávöxtunarkröfu til slíkrar fjárfestingar. Metið verður út frá sögulegum gögnum hvort hlutabréf sama fyrirtækis eða skuldabréf gefi af sér hærri ávöxtun yfir ákveðið tímabil. Verkefnið byggist á því að meta hvort fjárfestar séu þar af leiðandi betur staddir með því að kaupa hluta- eða skuldabréf viðkomandi fyrirtækis. Lykilorð • Skuldabréf • Hlutabréf • Ávöxtun • Áhætta • Samanburður