Ferðaþjónusta í náttúru Skagafjarðar, er hún sjálfbær?

Í þessu verkefni verður fjallað um fyrirtæki sem stunda ferðaþjónustu í náttúru Skagafjarðar og hvort að þau fyrirtæki leggi áherslu á að stunda sjálfbæra ferðaþjónustu. Sjálfbær ferðaþjónusta byggist á ákveðinni hugmyndafræði og hefur verið notuð í stefnumótunum frá hinu opinbera. Einnig hefur hugt...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Unnur Gottsveinsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13389
Description
Summary:Í þessu verkefni verður fjallað um fyrirtæki sem stunda ferðaþjónustu í náttúru Skagafjarðar og hvort að þau fyrirtæki leggi áherslu á að stunda sjálfbæra ferðaþjónustu. Sjálfbær ferðaþjónusta byggist á ákveðinni hugmyndafræði og hefur verið notuð í stefnumótunum frá hinu opinbera. Einnig hefur hugtakið um sjálfbæra ferðaþjónustu komið víða við í námi við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Markmiðið með verkefninu er að reyna að komast að því hvort að ferðaþjónustuaðilarnir, þeir sem virkilega vinna með ferðamönnum, nýti sér hugmyndafræði sjálfbærrar ferðaþjónustu í sínum rekstri. Til að komast að þessu voru tekin viðtöl við fulltrúa allra þeirra ferðaþjónustuaðila sem stunda ferðaþjónustu í náttúru Skagafjarðar samkvæmt skilgreiningu verkefnisins. Niðurstöður viðtalanna voru greindar út frá fræðilegu efni um viðfangsefnið. Efnið var afmarkað við þau fyrirtæki sem stunda ferðaþjónustu í náttúru Skagafjarðar þar sem náttúran er helsta aðdráttarafl erle nds ferðafólks hingað til lands. Náttúran er ferðaþjónustunni því mikilvæg en jafnframt viðkvæm auðlind. This project will discuss whether tourism companies operating in natural areas in Skagafjörður focus on sustainable tourism. Sustainable tourism is an ideology that has been used in policies by the public sector. The sustainable tourism concept has also been used in education in the Rural tourism department at the Hólar University. The goal of this project is to try to find out if tour operators, who work closely with the tourists, use the ideology of sustainable tourism in their operations. To find out, interviews were taken with all the tour operators in natural areas in Skagafjörður according to this assignment´s definition. The results of the interviews were analysed using the literature review on the subject. The study was confined to tourism companies operating in natural areas in Skagafjörður because nature is the main attraction for foreign visitors, who visit Iceland. Nature is therefore an important but also fragile resource for tourism in Iceland.