Félag kvenna í atvinnurekstri og veiting viðurkenningar til Já

Stuðla árlegar viðurkenningar Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) til kvenna í atvinnulífinu að auknu kynjafnrétti í íslensku samfélagi, eða viðhalda þær misrétti? Rannsóknin beinist að því að svara þessu og skoða um leið tilganginn með FKA og viðurkenningum félagsins. Í ár var viðurkenning FKA til...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Anna Pála Sverrisdóttir 1983-, Elva Björk Sverrisdóttir 1973-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13383
Description
Summary:Stuðla árlegar viðurkenningar Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) til kvenna í atvinnulífinu að auknu kynjafnrétti í íslensku samfélagi, eða viðhalda þær misrétti? Rannsóknin beinist að því að svara þessu og skoða um leið tilganginn með FKA og viðurkenningum félagsins. Í ár var viðurkenning FKA til fyrirtækisins Já gagnrýnd á þeim forsendum að fyrirtækið hefði ekki stuðlað að jafnrétti í verki, heldur þvert á móti. Gagnrýnin byggðist einkum á því að vinnustöð á Akureyri hefði verið lögð niður og 19 konur misst vinnuna. Þá voru viðskipti Já við Egil „Gillz“ Einarsson gagnrýnd með þeim rökum að hann stæði fyrir allt annað en jafnrétti kynja. Opinber umræða sem snýr að þessari gagnrýni er greind, bæði fréttir af málinu og umræða af hálfu FKA vegna gagnrýninnar. Við greiningu gagna er stuðst við kenningar um hugtakið „styðjandi kvenleiki“, en kjarninn í styðjandi kvenleika er sá að að viðhalda ráðandi karlmennsku og þar með samfélagslegum völdum karla. Helstu niðurstöður eru þær að afstaða FKA sem fram kom í umræðum um veitingu viðurkenningarinnar sem gagnrýnd var sé í raun opin gildra styðjandi kvenleika. Hún getur leitt til þess að viðurkenningin sé veitt fyrirtæki sem ýtir undir ráðandi karlmennsku og gengur gegn jafnrétti kynja í rekstri sínum að öðru leyti en því að hafa konur í stjórnunarstöðum