Ramadan in Iceland. A spiritual and social process

Grein mín og fyrirlestur munu fjalla um hvernig Ramadanmánuður, hin helgi föstumánuður múslíma er haldinn á Íslandi. Byggt er á vettvangsrannsókn og þátttökuaðferð meðal múslíma í tveimur íslömskum trúfélögum í Reykjavík og borið saman við samskonar helgihald annars staðar. Ramadan er níundi mánuður...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristján Þór Sigurðsson 1954-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:English
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13346
Description
Summary:Grein mín og fyrirlestur munu fjalla um hvernig Ramadanmánuður, hin helgi föstumánuður múslíma er haldinn á Íslandi. Byggt er á vettvangsrannsókn og þátttökuaðferð meðal múslíma í tveimur íslömskum trúfélögum í Reykjavík og borið saman við samskonar helgihald annars staðar. Ramadan er níundi mánuður í íslömsku tímatali en í þeim mánuði hófst opinberun Kóransins þar sem erkiengillinn Gabríel miðlaði orðum Guðs til spámannsins Múhameðs. Orðið Ramadan þýðir glóandi hiti, sviðin jörð eða skortur og vísar í eðli eyðimerkurinnar. Ramadan stendur yfir frá því að mánasigð hins nýja tungls hins níunda mánaðar sést á himni og þar til samskonar sýn sést fjórum vikum síðar. Í þessum mánuði fasta múslímar frá dögun til sólseturs og stunda bænahald í meira mæli en annars og hlýða á allan Kóraninn. Félagsleg samskipti og fjölskyldutengsl aukast til muna og mikilvægi þess að láta gott af sér leiða og betrumbæta sjálfan sig sömuleiðis. Ég mun bera saman framkvæmd trúarathafna í hinum tveimur trúfélögum, en á þeim er ákveðinn munur og mun einnig líta til annarra landa til samanburðar. Ég mun gera grein fyrir hinum fjölbreytilegu þáttum sem tengjast þessum mánuði; andlegum, félagslegum og líkamlegum, en vitund og virkni hvað það varðar er í hávegum höfð.