Fyrst þarf að læra að bjarga sjálfri sér. Þátttökurannsókn á Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík

Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík er ein af tæplega hundrað björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Íslenskt samfélag treystir á sveitirnar og dáist að þeim enda sjá þær að miklu leyti um leit og björgun á landi. Sjálfboðaliðar Landsbjargar fara út í óveðrin þegar aðrir kúra sig í hlýjunni...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Védís Ólafsdóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13280
Description
Summary:Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík er ein af tæplega hundrað björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Íslenskt samfélag treystir á sveitirnar og dáist að þeim enda sjá þær að miklu leyti um leit og björgun á landi. Sjálfboðaliðar Landsbjargar fara út í óveðrin þegar aðrir kúra sig í hlýjunni heima. Flestir Íslendingar þekkja aðeins starf björgunarsveita af afspurn og því er áhugavert að kynnast Flugbjörgunarsveitinni af eigin raun. Samfélag sveitarinnar býr yfir eigin veruleika og þar ríkja gildi og viðmið sem eru frábrugðin þeim sem ráða utan þess. Rannsókn mín er þátttökurannsókn þar sem ég, rannsakandinn, er hluti af vettvanginum. Vorið 2009 hóf ég nýliðaþjálfun hjá Flugbjörgunarsveitinni og kynntist sjálf vettvangi og veruleika sveitarinnar. Á vegi mínum urðu þversagnir sem mér fannst mikilvægt að átta mig á og rannsóknin er tilraun til að útskýra og skilja þær. Ritgerðin fylgir kynnum mínum af Flugbjörgunarsveitinni í réttri tímaröð og skiptist hún í sex kafla auk inngangs og lokaorða. Ritgerðin hefst á inngangi þar sem fjallað er um aðkomu mína að rannsóknarefninu, aðferðafræði svo og samræður rannsóknarinnar við önnur rit og rannsóknir. Annar kafli er um sögu og samhengi sveitarinnar. Björgunarfélögin voru lengi vel sjálfstæð og Flugbjörgunarsveitin var sérhæfð í leit og björgun flugvéla. Nú er sveitin hluti af Landsbjörg sem sameinar öll björgunarfélögin undir einum hatti. Í þriðja kafla er meðal annars fjallað um forsendur sjálfboðastarfa, ímynd björgunarfólks og þann leik sem til verður í starfi sveitarinnar. Fjórði kafli segir frá tveggja vetra nýliðaþjálfun Flugbjörgunarsveitarinnar, vígsluathöfn sem breytir venjulegu fólki í Flubba, fullgilda félaga sveitarinnar. Fimmti kafli er um starf sveitarinnar, skylduna sem heldur fólki í starfi og vægi og virðingu ólíkra flokka og hópa í Flugbjörgunarsveitinni. Þar að auki segir frá þeim einkennum Flugbjörgunarsveitarinnar sem oft eru talin greina hana frá öðrum björgunarsveitum. Sjöundi kafli ritgerðarinnar segir frá aðkomu kvenna að ...