Úrgangur til orku. Leiðir til að nýta skólp til eldsneytisframleiðslu

Lögum samkvæmt er skylt að nýta skólp á Íslandi sé þess einhver kostur en eins og sakir standa er það ekki gert og rennur skólp frá höfuðborgarsvæðinu í gegnum tvær hreinsistöðvar Orkuveitu Reykjavíkur og þaðan til sjávar. Í þessari ritgerð verður leitað leiða til að nýta skólp á höfuðborgarsvæðinu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórður Ingi Guðmundsson 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13279
Description
Summary:Lögum samkvæmt er skylt að nýta skólp á Íslandi sé þess einhver kostur en eins og sakir standa er það ekki gert og rennur skólp frá höfuðborgarsvæðinu í gegnum tvær hreinsistöðvar Orkuveitu Reykjavíkur og þaðan til sjávar. Í þessari ritgerð verður leitað leiða til að nýta skólp á höfuðborgarsvæðinu og kannað hvað slíkt myndi kosta. Nokkrar leiðir eru færar í nýtingu skólps en hér verður fyrst og fremst horft til metanframleiðslu með súrefnissnauðu niðurbroti og framleiðslu vetnis með gösun. Hér verður tekið saman magn nýtanlegra efna í skólpi, hve mikið metan eða vetni væri hægt að framleiða úr þeim og kostnaður við nýtingu þeirra ásamt endurgreiðslutíma og arðsemi. Þá verður flæði um fráveitukerfi Orkuveitu Reykjavíkur greint með aðhvarfsgreiningu í hitaveituvatn, vatn til almennra nota og úrkomu. Út frá þeim niðurstöðum er sett saman líkan sem spáir fyrir um fráveiturennsli í þéttbýli með hitaveitu út frá veðurfari. Miðað við magn lífrænna efna í skólpi er hægt að framleiða um 1.200.000 Nm3 metans úr seyru eingöngu og um 3.000.000 Nm3 metans sé notast við íblöndunarefni, nánar tiltekið fitu úr fituskiljum fráveitustöðva og lífrænan heimilisúrgang á höfuðborgarsvæðinu. Fjárfestingarkostnaður í slíku lífgasveri er á bilinu 0,8 – 2 milljarðar króna eftir því hvort notast er við íblöndun eða ekki og borgar sig upp á 12 – 40 árum miðað við 6% vexti. Fræðilega mætti ná um 730 tonnum af vetni árlega úr skólpi á höfuðborgarsvæðinu með gösun. Hafa skal í huga að hér er um frumathugun að ræða og nokkur óvissa því til staðar í útreikningum, ekki síst við mat á gösun skólps. By law, sewage in Iceland must be utilized if there is a feasible way to do that but it is not done at the moment. Sewage from the greater Reykjavík area flows through two treatment plants and from there to the ocean. In this study, ways to utilize sewage sludge will be investigated and cost and benefits of sewage sludge usage calculated. Number of ways are possible to use sludge but this study focuses on two of them, namely methane production ...