„Maður bíður meira eftir þrettándanum en eftir jólunum!“ Form, hlutverk og þróun þrettándans í Vestmannaeyjum

Í þessari ritgerð er form, hlutverk og þróun þrettándans í Vestmannaeyjum kannaður út frá kenningum um sviðslist. Eftirfarandi ritgerð er skipt upp í fimm kafla. Í fyrsta kaflanum er gert grein fyrir rannsóknarefninu og þeim rannsóknaraðferðum sem notaðar voru. Einnig verður lítillega farið yfir fyr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrefna Díana Viðarsdóttir 1978-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13265
Description
Summary:Í þessari ritgerð er form, hlutverk og þróun þrettándans í Vestmannaeyjum kannaður út frá kenningum um sviðslist. Eftirfarandi ritgerð er skipt upp í fimm kafla. Í fyrsta kaflanum er gert grein fyrir rannsóknarefninu og þeim rannsóknaraðferðum sem notaðar voru. Einnig verður lítillega farið yfir fyrri rannsóknir annarra fræðimanna á þessu sviði bæði erlendis og hérlendis. Í öðrum kafla verða þær kenningar sem notaðar verða í ritgerðinni kynntar. Í þriðja kafla verður saga þrettándans rakin, eða þeir siðir sem hafa verið við lýði við lok jólatímabilsins, bæði erlendis og hérlendis, og að lokum í Vestmannaeyjum. Þar hefur þessum tímamótum verið fagnað með dulbúningar- og heimsóknarsið, blysför, álfadansi, jólasveinum og loks tröllum og púkum. Í fjórða kafla verður form hátíðahaldanna rannsakað út frá kenningum um sviðslist og hlutverk hennar eða virkni gerð skil. Jafnframt verður gert grein fyrir þróun hátíðahalda þrettándans í Vestmannaeyjum fram til dagsins í dag. Að síðustu verða hátíðahöld þrettándans í Vestmannaeyjum greind í ljósi þeirra kenninga sem þá hafa verið raktar