Þjóðargersemar : íslenski þjóðbúningar

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi ritgerð er unninn sem lokaverkefni til B.Ed.- prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vormisserið 2005. Ritgerðin fjallar um námsefni sem nýtir Veraldarvefinn sem námsumhverfi og þær kennsluaðferðir og þá kennslufræði s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðríður Sigurðardóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1325
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi ritgerð er unninn sem lokaverkefni til B.Ed.- prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vormisserið 2005. Ritgerðin fjallar um námsefni sem nýtir Veraldarvefinn sem námsumhverfi og þær kennsluaðferðir og þá kennslufræði sem að baki því liggja. Leitast er við að svara eftirfarandi spurningum í ritgerðinni:  Er hægt að miðla þjóðargersemum í gegnum vefinn?  Hvaða kennslufræði hentar slíkri miðlun? Mikil tækniþróun á sér stað í samfélaginu og nemendur hverfa til starfa í síbreytilegu upplýsingasamfélagi. Markmið skóla er að búa nemendur undir líf og starf í því þjóðfélagi sem þeir tilheyra. Skólinn á að endurspegla þjóðfélagið og þarf að mæta nýjum og breyttum kröfum sem til hans eru gerðar. Kennsluhættir og námsefni þurfa að taka breytingum samkvæmt því. Námsefnið sem hannað var sem hluti af þessari ritgerð er ágætt dæmi um hvernig nýta megi þessa tækni til kennslu. Námsefnið sem nefnist „Þjóðargersemar - íslenskir þjóðbúningar“ er ætlað unglingastigi grunnskóla og unnið er út frá markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla. Markmið með námsefninu er að gera nemendur meðvitaðri um þau menningarverðmæti sem við eigum og stuðla að útbreiðslu sögu íslenskra þjóðbúninga og þeirri aldargömlu verkmenningu sem liggur í vinnu þeirra. Nemendum er boðið upp á fjölbreytt og áhugavert námsumhverfi með því að hafa námsefnið á Veraldarvefnum. Námsefnið „Þjóðargersemar – íslenskir þjóðbúningar“ er á geisladiski í vasa á aftari kápusíðu.