Brunavarnir í háhýsum. Greining á rýmingu og aðkomu slökkviliðs

Þetta verkefni fjallar um brunavarnir í háhýsum, sér í lagi greiningu á rýmingu og aðkomu slökkviliðs. Farið er í regluverk á Íslandi þegar framkvæmdir eru unnar og almennt í brunavarnir bygginga, ræddur er munurinn á föstum brunavörnum og brunatæknilegum kerfum og rætt er stuttlega um forvarnir. Hu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásdís Rósa Gunnarsdóttir 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13221
Description
Summary:Þetta verkefni fjallar um brunavarnir í háhýsum, sér í lagi greiningu á rýmingu og aðkomu slökkviliðs. Farið er í regluverk á Íslandi þegar framkvæmdir eru unnar og almennt í brunavarnir bygginga, ræddur er munurinn á föstum brunavörnum og brunatæknilegum kerfum og rætt er stuttlega um forvarnir. Hugtakið brunahönnun er kynnt og skoðaður er munurinn á forskriftarhönnun og markmiðshönnun. Þá er skilgreining háhýsa skoðuð. Tekin eru saman helstu háhýsi á Höfuðborgarsvæðinu og þau skoðuð með tilliti til brunavarna í þeim. Bornar eru saman kröfur og reglur til háhýsa og brunavarna í þeim, hér á landi og erlendis. Fjallað er um rýmingu, bæði almennt og sér í lagi úr háhýsum. Farið er í þá rýmingarmöguleika sem eru í boði í háhýsum. Skoðaðar eru sérstaklega lyftur, bæði fyrir slökkvilið og til almennrar rýmingar. Farið er sérstaklega í þær ströngu kröfur sem lyfturnar og þeirra umhverfi þarf að uppfylla til þess að nægilegt brunaöryggi náist. Hugtakið algild hönnun er kynnt og rætt er rýmingaröryggi fatlaðra. Fjallað er um aðkomu slökkviliðs þegar bruna í háhýsi ber að höndum. Farið er í brunatæknilegan búnað þeirra og aðferðarfræði við slökkvistarf. Sýnt er fram á mikilvægi brunavarnarlyfta í háhýsum til notkunar fyrir slökkvilið. Að lokum eru skrifuð drög að þremur leiðbeiningablöðum í samvinnu við Mannvirkjastofnun. LYKILORÐ Háhýsi – brunavarnir – brunaöryggi – brunamótstaða – brunahólfun – brunahönnun – flóttaleið – rýming – frágengi – stigleiðsla – stigahús – öruggt svæði – brunavarnarlyfta – flóttalyfta – vatnsúðakerfi – aðkoma slökkviliðs. This thesis studies fire protection in high rise buildings, in particular analysis on evacuation and fire department intervention. Regulatory environment in Iceland concerning construction is introduced. Fire protection in buildings is discussed, the difference between passive and active fire protection is explained and fire prevention is discussed shortly. The term fire safety engineering design is introduced and the difference between prescriptive regulations and ...