"Fuglinn segir bí bí bí" : þemaverkefni á vef um fugla

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vormisserið 2004. Ritgerðin fjallar um námsefni sem nýtir Veraldarvefinn sem námsumhverfi og þá kennslufræði og þær kennsluaðferðir s...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elsa Austfjörð, Hallfríður Hilmarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1322
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vormisserið 2004. Ritgerðin fjallar um námsefni sem nýtir Veraldarvefinn sem námsumhverfi og þá kennslufræði og þær kennsluaðferðir sem að baki því liggja. Í ritgerðinni er leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Á hvern hátt má nýta upplýsingatækni og Veraldarvefinn við líffræðikennslu? Hvaða kennslufræði má ætla að henti vefstuddri kennslu? Hverjir eru kostir þess og gallar að nýta Veraldarvefinn sem námsumhverfi? Markmið skóla er að búa nemendur undir líf og starf í því þjóðfélagi sem þeir tilheyra. Gífurleg tækniþróun hefur átt sér stað í samfélaginu. Skólinn á að endurspegla samfélagið og því þarf námsefni og kennsluhættir að taka mið af því. Námsefnið sem hannað var er gott dæmi um hvernig nýta megi þessa auknu tækni. Námsefnið sem nefnist ,,Fuglinn segir bí bí bí“er ætlað miðstigi grunnskóla og er unnið út frá markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla. Markmiðið með námsefninu er að gera nemendur meðvitaðari um þá fugla sem lifa í náttúrunni í kringum þá, efla umhverfisgreind þeirra og stuðla að umgengni við náttúruna af virðingu. Með því að hafa námsefnið á Veraldarvefnum er nemendum boðið upp á fjölbreytt og áhugavert námsumhverfi. Námsefnið ,,Fuglinn segir bí bí bí“ er á geisladiski í vasa á aftari kápusíðu.