Skóladrengir og karlmennska - fjötrar eða frelsi? : hefur karlmennskuorðræðan áhrif á drengi í skóla

Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2005. Lokaverkefnið skiptist í megindráttum í tvo hluta. Fyrri hlutinn er fræðileg umfjöllun um drengi, karlmennsku, skóla og drengi í skóla. Síðari hlutinn fjallar um rannsókn sem gerð var u...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Joanna Leokadia Wójtowicz, Sigríður Hreinsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1321
Description
Summary:Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2005. Lokaverkefnið skiptist í megindráttum í tvo hluta. Fyrri hlutinn er fræðileg umfjöllun um drengi, karlmennsku, skóla og drengi í skóla. Síðari hlutinn fjallar um rannsókn sem gerð var um það hvað foreldrum og drengjum í skóla finnst vera karlmennska og hvort orðræða um karlmennsku hefur áhrif á drengi í skóla. Rannsóknin er bæði egindleg og megindleg. Þátttakendur voru hópur foreldra og drengir á unglingastigi í einum skóla. Tekin voru viðtöl við foreldra en lögð gagnvirk könnun fyrir drengina. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvaða hugmyndir foreldrar og drengir hafa um karlmennsku, hvaða áhrif orðræðan um karlmennsku hefur á drengi í skólum. Einnig var skoðað hvort sömu kröfur eru gerðar til kynja í skóla. Meginniðurstöður eru þær að hugmyndir foreldra og drengja líkjast ríkjandi hugmyndum um karlmennsku. Orðræða um karlmennsku hefur áhrif á foreldra og drengi þannig að hún mótar hugsanir þeirra og hegðun. Umhverfið gerir þær kröfur á drengi að þeir passi inn í staðlaða ímynd karlmennskunnar og það keppast þeir við. Samhliða hefðbundnum hugmyndum um karlmennsku eru einnig merki um að hún sé að taka breytingum. Rannsakendur telja mikilvægt að fólk almennt sé meðvitað um áhrif karlmennskuorðræðunnar á drengi og hvernig draga megi úr skaðlegum áhrifum hennar.