Ímynd álversins í Straumsvík í hugum Hafnfirðinga á aldrinum 18-67 ára

Flest fyrirtæki leggja mikið upp úr því að viðhalda jákvæðri ímynd. Ritgerð þessi fjallar um rannsókn á ímynd álversins í Straumsvík. Í fyrri hluta hennar er fjallað um álverið í Straumsvík, og fræðileg umfjöllun um ímynd, fyrirtækjaímynd, mælingar á ímynd og víddir ímyndar. Í seinni hluta ritgerðar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: María Guðrún Arnardóttir 1976-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13163
Description
Summary:Flest fyrirtæki leggja mikið upp úr því að viðhalda jákvæðri ímynd. Ritgerð þessi fjallar um rannsókn á ímynd álversins í Straumsvík. Í fyrri hluta hennar er fjallað um álverið í Straumsvík, og fræðileg umfjöllun um ímynd, fyrirtækjaímynd, mælingar á ímynd og víddir ímyndar. Í seinni hluta ritgerðarinnar er fjallað um helstu niðurstöður höfundar. Markmið hennar var að afla upplýsinga meðal Hafnfirðinga á aldrinum 18-67 ára um hver ímynd álversins í Straumsvík er í þeirra hugum. Rannsóknin var unnin með blandaðri aðferð eigindlegra og megindlegra rannsóknaraðferða. Niðurstöður eigindlegrar rannsóknar benda til þess að sú ímynd sem Hafnfirðingar hafi af álverinu sé að það sé tekjuaukandi, líkist ferlíki, sé öruggt, atvinnuskapandi og mengandi bæði hvað varðar sjón og umhverfi. Spurningalisti var lagður fyrir 500 manna slembiúrtak úr Þjóðskrá til að skoða þessi þætti sérstaklega en niðurstöður rannsóknarinnar í heild benda til þess að ímynd álversins sé frekar jákvæð og karlar eru jákvæðari gagnvart álverinu en konur.