Áhrif félagsgerðar hverfasamfélagsins á tíðni heimilisofbeldis á höfuðborgarsvæðinu

Íslenskar rannsóknir hafa gefið innsýn í eðli og alvarleika heimilisofbeldis. Hingað til hafa rannsóknirnar verið byggðar á spurningalistakönnunum, sjúkraskrám eða gögnum frá lögreglu. Í þessari rannsókn verður í fyrsta skipti notast við nokkur gagnasöfn samtímis; gögn frá lögreglunni, spurningalist...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjarney Kristrún Haraldsdóttir 1980-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13150
Description
Summary:Íslenskar rannsóknir hafa gefið innsýn í eðli og alvarleika heimilisofbeldis. Hingað til hafa rannsóknirnar verið byggðar á spurningalistakönnunum, sjúkraskrám eða gögnum frá lögreglu. Í þessari rannsókn verður í fyrsta skipti notast við nokkur gagnasöfn samtímis; gögn frá lögreglunni, spurningalistakönnunina Ungt fólk 2006 og gögn frá Hagstofu Íslands. Greiningareining (e. unit of analysis) rannsóknarinnar eru 43 skólahverfi. Mælingarnar á heimilisofbeldi eru ekki skilgreindar í tengslum við alvarleika heldur tíðni. Í rannsókninni voru prófaðar tilgátur sem dregnar eru af kenningum um félagslega óreiðu. Skoðað var hvort félagsleg samsetning (bág efnahagsstaða íbúa, hátt hlutfall einstæðra foreldra og hátt hlutfall foreldra með erlent ríkisfang) skólahverfa á höfuðborgarsvæðinu hefði haft áhrif á tíðni líkamlegs ofbeldis, andlegs ofbeldis og á það hvort unglingar hefðu orðið vitni að líkamlegu ofbeldi á milli foreldra í hverfinu. Einnig var skoðað hvort áhrif félagslegrar samsetningar á heimilisofbeldi hefði verið miðlað í gegnum tengslanet á milli foreldra í hverfinu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að ákveðnir þættir í félagslegri samsetningu skólahverfa hefðu haft marktækt samband við tíðni heimilisofbeldis og er það samband í samræmi við tilgátur. Fjölstigagreining (e. multilevel analysis) sýnir enn fremur að félagsleg samsetning skólahverfisins hefði haft tölfræðileg áhrif á heimilisofbeldi, þegar sömu einkennum á einstaklingsstiginu er haldið föstum. Icelandic studies on domestic violence have given a valuable insight into the nature and seriousness of the violence. Studies have so far been based on questionnaire surveys or data from medical or police records. This study uses multilevel data from the police, the survey questionnaire Young People 2006 and data from Statistics Iceland. The complete database is based on 43 school districts (e. unit of analysis). The measure of domestic violence is not defined by its seriouness but rather the frequency. The study explores the relationship between ...