Summary: | Markmið rannnsóknarinnar er að kanna þekkingu starfsfólks leikskóla á Selfossi um að tilkynna til barnaverndarnefnda, grun á ofbeldi eða vanrækslu á börnum eins og skilyrt er í Barnaverndarlögum. Rannsóknin var gerð í fimm leikskólum og svörðuðu 83 af 94 starfsmönnum. Lagður var fyrir starfsfólkið spurningarlisti þar sem 15 spurningum var skipt í þrjá hópa, almennar spurningar, þekkingartengdar spurningar og spurningar varðandi ofbeldi eða vanrækslu á börnum. Rannsóknin leiddi í ljós að aðeins 12,05% svarenda var upplýstur um einkenni ofbeldis eða vanrækslu á börnum og aðeins 31,33% voru upplýsitir um tilkynningaskyldu þeirra. Athygli vakti að af 39.76% svarenda sem höfðu grunað að barn sætti ofbeldi eða vanrækslu, tilkynntu aðeins 54,55% þeirra grun sinn. Rannsóknin leiddi í ljós að starfsfólk leikskóla á Selfossi er ekki nægjanlega upplýst um tilkynningarskyldu sína til barnaverndarnefnda og er ekki undirbúið undir það hvernig á að greina og bregðast við ofbeldi eða vanrækslu á börnum.
|