Börn og tilfinningar

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri árið 2004. Tilgangur verkefnisins er að skoða þætti sem hafa áhrif á tilfinningar og tilfinningaþroska leikskólabarna og í...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Sigrún Halldórsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1313
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri árið 2004. Tilgangur verkefnisins er að skoða þætti sem hafa áhrif á tilfinningar og tilfinningaþroska leikskólabarna og í tengslum við ritgerðarskrifin hannaði ég Tilfinningaspil. Þörf er á að finna farveg til að ræða um tilfinningar í gegnum leik og störf barna með það meginmarkmið í huga að börn læri að þekkja sínar tilfinningar og skilja tilfinningar annarra. Rannsóknir á starfsemi heilans eru stöðugt að færa okkur nýja vitneskju, sem vekja vonir um að hægt verði að vinna betur með tilfinningar, þekkja þær og stjórna þeim. Þannig geti einstaklingar haft jákvæð áhrif á líf sitt og annarra einstaklinga í samfélaginu og þar með allt samfélagið. Sagt er frá tilfinningum í sögulegu samhengi og hvernig kennismiðir allt frá tímum Aristótelesar til dagsins í dag hafa litið mismunandi á þátt tilfinninga í siðferðisþroska mannsins. Ég fjalla um ólík viðhorf og skilning á tilfinningum í samfélaginu, svo og um nýjustu kenningar um tilfinningagreind, sérstaklega kenningar þeirra Daniels Golmans og Howards Gardners sem snúa að tilfinningagreind barna og mikilvægi þess að efla tilfinningaþroska, samhygð og almennt tilfinningalæsi. Ég fjalla um þróun í rannsóknum á heilanum og hvað þær hafa fært okkur sem varpað hefur nýju ljósi á möguleika í þroskun á starfsemi heilans og hæfni hans á fullorðinsárum til að takast á við það sem lífið býður hverjum einstakling. Hvernig reynsla barnsins hefur afgerandi áhrif á mótun sjálfsmyndar. Hvaða þættir það eru sem móta sjálfsmynd barna, leikskólakennarar hafa þar veigamiklu hlutverki að gegna. Ég skoða hvernig Aðalnámskrá leikskóla er stefnumótandi í námskrám leikskóla. Í tengslum við ritgerðina hannaði ég Tilfinningaspil, sem er leið til að skapa umræðu um tilfinningar meðal barnanna í gegnum leikinn. Í forprófun á Tilfinningaspilinu voru börnin áhugasöm og glöð og sáu fleiri notkunarmöguleika en upphaflega ...