Undirbúningur stjórnkerfisbreytinga í skólum á Akureyri og í Reykjavík. Verkefnamat.

Markmiðið með þessu verkefni var að gera verkefnamat á undirbúningi stjórnkerfisbreytinga í skólamálum á Akureyri og í Reykjavík sem stóðu yfir á árunum 2010-2012. Matið var að mestu unnið á tímablinu janúar til ágúst 2012, en undirbúningur þess stóð frá hausti 2010. Matið byggir á skriflegum heimil...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Jóhannesdóttir 1975-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/13043
Description
Summary:Markmiðið með þessu verkefni var að gera verkefnamat á undirbúningi stjórnkerfisbreytinga í skólamálum á Akureyri og í Reykjavík sem stóðu yfir á árunum 2010-2012. Matið var að mestu unnið á tímablinu janúar til ágúst 2012, en undirbúningur þess stóð frá hausti 2010. Matið byggir á skriflegum heimildum er varða vinnu starfshópa sem unnu að endurskoðun stjórnkerfisbreytinga, bakgrunnsgagna, útgefinna skýrslna og fundargerða. Tekin voru viðtöl við tvo lykilaðila í endurskoðunarferlinu hjá báðum sveitarfélögunum. Störf hópanna voru metin með hliðsjón af kenningum um breytingastjórnun og leiðbeiningum fjármálaráðuneytisins um sameiningar stofnana. Störf hópanna á Akureyri og í Reykjavík voru keimlík, þótt gengið hafi verið út frá ólíkum forsendum þegar lagt var af stað. Megintilgangur endurskoðunarinnar var þó hinn sami hjá báðum sveitarfélögum, að leita hagræðingar í stjórnkerfi skóla án þess að ganga nærri faglegu starfi skólanna. Niðurstöður verkefnamatsins benda til að vinna sveitarfélaganna samrýmist á margan hátt fræðum í breytingarstjórnun. Starfshóparnir virtust metnaðarfullir og reynt var að vanda til verka; afla fræðilegra og hagnýtra upplýsinga, skoða fjölda hugsanlegra möguleika, upplýsa og hafa samráð við hagsmunaaðila og sérfræðinga og vinna greinargóðar skýrslur. Í Reykjavík einkenndist vinnan af miklu samráði og virku upplýsingaflæði, sem þó virðist ekki hafa skilað sér nægilega vel til að afla tillögum stuðnings. Einnig var haft töluvert samráð á Akureyri, þótt það hafi verið í minna mæli en í Reykjavík. Tillögurnar fengu þar nánast enga fjölmiðlaumfjöllun þótt ekki hafi ríkt full sátt um þær. Niðurstöður sýna að þrátt fyrir að notast sé við aðferðir breytingastjórnunar með skipulögðum hætti er ekki hægt að útiloka mikla andstöðu við breytingar, bæði meðal starfsmanna og íbúa. The thesis describes a program evaluation of the reorganization process of pre- and elementary schools in Reykjavik and Akureyri municipalities during 2010-12. The study reviews the work of two separately working project ...