Fóðurþörf, vöxtur og efnaskipti þorsks í eldiskerfum

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Fóðurkostnaður er stærsti kostnaðarþátturinn í eldi á þorski og prótein er dýrasti hluti af fóðrinu. Próteininnihald fóðurs og verð á próteini í fóðri skiptir því miklu mái fyrir framleiðslukostnað í þorskeldi. Í verkefninu var rannsakað...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðbjörg Stella Árnadóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1300
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Fóðurkostnaður er stærsti kostnaðarþátturinn í eldi á þorski og prótein er dýrasti hluti af fóðrinu. Próteininnihald fóðurs og verð á próteini í fóðri skiptir því miklu mái fyrir framleiðslukostnað í þorskeldi. Í verkefninu var rannsakað hversu vel þorskur vex við mismunandi próteinsamsetningar í fóðri en það gæti skipt miklu máli hvað fóðurnýtingu varðar. Fiskinum í tilrauninni var skipt í 6 hópa og var hverjum hóp skipt í 3 eldisker. Fóðrað var allan sólarhringinn og innihélt tilraunafóður mismunandi hlutfall próteina, fitu og kolvetna. Ný aðferð var aðlöguð og notuð til mælinga á ammoníum, er hún einfaldari og hættuminni heilsu manna en sú aðferð sem notuð hefur verið í fiskeldisrannsóknum hérlendis. Rannsakað var hvernig þorskurinn tæki fóðrið, hver útskilnaður hans væri við hverja fóðurtegund, vöxtur fisksins og heildarát. Niðurstaðan var sú að hvorki reyndist vera marktækur munur var á vexti fiska m.t.t. fóðurtegunda né m.t.t. súrefnisupptöku eða útskilnaðar á koltvíoxíði. Til þess að tengja saman þau tvö svið sem verkefnið er unnið frá, voru umhverfisáhrif fiskeldis og reglugerðir hvað varðar umhverfismat og starfsleyfi einnig skoðuð. Reynt er að átta sig á þeim áhrifum sem fiskeldi getur haft á sitt nánasta umhverfi. Lykilorð: Þorskur, eldi, fóður, vöxtur, umhverfisáhrif