Dalmar ehf : stefna og valkostir

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þetta verkefni fjallar um greiningu á umhverfi og rekstrarmöguleikum fiskvinnslufyrirtækisins Dalmars ehf. Beitt var aðferðum stefnumótunar til að greina ytra og innra umhverfi félagsins og æskileg staðsetning þess á markaði fundin. Fari...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bergur Guðmundsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2002
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1293
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þetta verkefni fjallar um greiningu á umhverfi og rekstrarmöguleikum fiskvinnslufyrirtækisins Dalmars ehf. Beitt var aðferðum stefnumótunar til að greina ytra og innra umhverfi félagsins og æskileg staðsetning þess á markaði fundin. Farið var yfir möguleika fyrirtækisins til hráefnisöflunar og samkeppnisstöðu þess á hráefnismarkaði. Nokkrir vinnslumöguleikar voru rannsakaðir með tilliti til framlegðar, framboðs af hráefni og mögulegrar sölu á afurðum. Niðurstöður greiningarinnar voru notaðar til að meta mögulega afkomu af rekstri fyrirtækisins ef farnar yrðu þær leiðir sem mælt er með. Næmnigreiningar varpa ljósi á það hversu mikil áhrif breytingar á ákveðnum rekstrarþáttum hefðu á afkomu. Niðurstöður verkefnisins leiða í ljós að nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að aðgreina sig á markaði til að ná varanlegum samkeppnisyfirburðum. Aðgreining á markaðshillu er raunhæfasti kostur fyrirtækisins og er mælt með því að stjórnendur reyni að stækka markað fyrirtækisins fyrir sérvörur í samstarfi við SÍF hf. Samkvæmt niðurstöðum afkomumats má bæta afkomu félagsins verulega með því að leita markvisst að framleiðslumöguleikum sem gefa af sér meiri framlegð og leggja áherslu á framleiðslu og sölu þeirra afurða. Lykilorð: Fiskverð, Dalmar, stefnumótun, fiskvinnsla, afkoma.