Samvinnunám og skólaþróun : leið að bættu skólasamfélagi

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2006. Ritgerðin skiptist í megin dráttum í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er fræðileg umfjöllun um skólaþróun, samvinnunám og þær kenningar sem þar...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Gréta Arngrímsdóttir, Gréta Björnsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1283
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. – prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2006. Ritgerðin skiptist í megin dráttum í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er fræðileg umfjöllun um skólaþróun, samvinnunám og þær kenningar sem þar liggja að baki. Síðari hlutinn fjallar um rannsókn sem gerð var á því hversu stór þáttur samvinnunám er í kennsluháttum kennara Stórhólsskóla í kjölfar þróunarverkefnis. Rannsóknin er bæði eigindleg og megindleg og þátttakendur voru annarsvegar kennarar skólans sem allir svöruðu spurningalista og hinsvegar skólastjóri og tveir kennarar sem við tókum viðtöl við. Tilgangur rannsóknarinnar var að fá svör við því hvort kennarar skólans séu að nota samvinnunám og hvað skýrir þær breytingar sem orðið hafa síðan þróunarverkefninu lauk. Megin niðurstöður eru þær að samvinnunám er lítið sem ekkert notað í skólanum þrátt fyrir að kennarar séu almennt á því að aðferðin sé góð og skili góðum árangri. Helstu ástæður fyrir því hversu illa gekk að láta aðferðina festast í sessi eru þær að eftirfylgni vantaði eftir að þróunarverkefninu lauk formlega og undirbúningstími er oft af skornum skammti. Ábyrgð skólastjórnenda er mikil bæði hvað varðar að hvetja kennara til fjölbreyttra kennsluhátta og viðhalda því þróunarstarfi sem byrjað er á og stuðla að því að það festist í sessi.