Grenndar- og söguvitund grunnskólanema í Eyjafirði

Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.- prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni hennar er grenndar- og söguvitund grunnskólanema í Eyjafirði. Grenndarvitundarhugtakið er nýlegt, en það fjallar um þekkingu mannsins á umhverfi sínu. Söguvitundarhugtakið merkir tilfinningu fyrir liðn...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ágúst Ingi Ágústsson, Orri Stefánsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1280
Description
Summary:Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.- prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Viðfangsefni hennar er grenndar- og söguvitund grunnskólanema í Eyjafirði. Grenndarvitundarhugtakið er nýlegt, en það fjallar um þekkingu mannsins á umhverfi sínu. Söguvitundarhugtakið merkir tilfinningu fyrir liðnum tíma, nútíð og framtíð. Þessar vitundir eru fólki mikilvægar því þær auka næmni og virðingu fyrir umhverfi, náttúru og menningu landsins. Við lögðum fyrir spurningalista sem innihélt 20 spurningar í fjórum grunnskólum á Eyjafjarðarsvæðinu, þar sem við könnuðum þekkingu nemenda á sögu og staðháttum Eyjafjarðar. Könnunin var lögð fyrir í 6. og 10. bekk Grenivíkurskóla, Hrafnagilsskóla, Oddeyrarskóla og Síðuskóla. Alls tóku 126 nemendur þátt í rannsókninni. Niðurstöður könnunarinnar voru þær að töluvert vantar upp á grenndarog söguvitund grunnskólanema í Eyjafirði og eitthvað þarf að gera til að það breytist. Það verður að vera samvinna skóla og heimila að fá nemendur til að opna augun fyrir nánasta umhverfi sínu og kynna sér helstu einkenni þess og sögu.