Íþrótta- og tómstundastarf grunnskólanema : áhrif þess á námsárangur
Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Unglingar hafa líkt og aðrir þegnar bæði réttindi og skyldur í því samfélagi sem vi búum í. Þeir hafa rétt á því að taka þátt í félagsstarfi en jafnframt ber þeim skylda að stunda nám til 16 ára aldurs. Með því að kanna einkunnir ungling...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2006
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/1277 |
Summary: | Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Unglingar hafa líkt og aðrir þegnar bæði réttindi og skyldur í því samfélagi sem vi búum í. Þeir hafa rétt á því að taka þátt í félagsstarfi en jafnframt ber þeim skylda að stunda nám til 16 ára aldurs. Með því að kanna einkunnir unglinga og hvað þeir hafa fyrir stafni í frítíma sínum er hægt að fá heildarmynd af virkni þeirra og tengslum við námsárangur. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort íþrótta- og tómstundaiðkun hafi áhrif á námsárangur. Rannsóknir af þessu tagi hafa verið framkvæmdar hérlendis áður en miklu umfangsmeiri. Til að fá svar við þessum spurningum gerðu rannsakendur könnun meðal 8., 9. og 10. bekkinga í tveimur grunnskólum Akureyrarbæjar. Niðurstöðurnar sýndu að nemendurnir sem tóku þátt í könnuninni voru almennt duglegir að taka þátt í íþróttum og tómstundum. Einnig fannst í flestum tilvikum marktæk fylgni milli íþrótta- og tómstundaiðkunar og námsárangurs. Er það í samræmi við fyrri rannsóknir. |
---|