Íþrótta- og tómstundastarf grunnskólanema : áhrif þess á námsárangur

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Unglingar hafa líkt og aðrir þegnar bæði réttindi og skyldur í því samfélagi sem vi búum í. Þeir hafa rétt á því að taka þátt í félagsstarfi en jafnframt ber þeim skylda að stunda nám til 16 ára aldurs. Með því að kanna einkunnir ungling...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðmundur Elías Hákonarson, Páll Þorgeir Pálsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1277
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Unglingar hafa líkt og aðrir þegnar bæði réttindi og skyldur í því samfélagi sem vi búum í. Þeir hafa rétt á því að taka þátt í félagsstarfi en jafnframt ber þeim skylda að stunda nám til 16 ára aldurs. Með því að kanna einkunnir unglinga og hvað þeir hafa fyrir stafni í frítíma sínum er hægt að fá heildarmynd af virkni þeirra og tengslum við námsárangur. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort íþrótta- og tómstundaiðkun hafi áhrif á námsárangur. Rannsóknir af þessu tagi hafa verið framkvæmdar hérlendis áður en miklu umfangsmeiri. Til að fá svar við þessum spurningum gerðu rannsakendur könnun meðal 8., 9. og 10. bekkinga í tveimur grunnskólum Akureyrarbæjar. Niðurstöðurnar sýndu að nemendurnir sem tóku þátt í könnuninni voru almennt duglegir að taka þátt í íþróttum og tómstundum. Einnig fannst í flestum tilvikum marktæk fylgni milli íþrótta- og tómstundaiðkunar og námsárangurs. Er það í samræmi við fyrri rannsóknir.