Vettvangsnám á grunnskólabraut í Kennaraháskóla Íslands : viðhorf kennaranema og viðtökukennara

Viðfangsefni þessarar rannsóknar var að kanna reynslu kennaranema og viðtökukennara af vettvangsnámi, þ.e. þeim hluta grunnskólakennaranáms sem fram fer í grunnskólum. Rannsóknin var gerð á skólaárinu 2005−2006 og tók til kennaranema í Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) á síðasta námsári sem höfðu lokið ö...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigríður Pétursdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1271
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar rannsóknar var að kanna reynslu kennaranema og viðtökukennara af vettvangsnámi, þ.e. þeim hluta grunnskólakennaranáms sem fram fer í grunnskólum. Rannsóknin var gerð á skólaárinu 2005−2006 og tók til kennaranema í Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) á síðasta námsári sem höfðu lokið öllu vettvangsnámi á grunnskólabraut. Einnig tók hún til viðtökukennara þeirra í kennslugreininni sem þeir sérhæfa sig í að kenna. Upplýsingaöflun fór fram með tvennum hætti, þ.e. spurningalistar voru lagðir fyrir kennaranema og viðtökukennara og einnig var rætt við rýnihóp kennaranema úr nokkrum kjörsviðsgreinum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar telja kennaranemar að vettvangsnámið sé mikilvægur þáttur í kennaranáminu. Virðist ríkja nokkuð almenn ánægja meðal kennaranema um einstök vettvangsnámstímabil og tengsl vettvangsnámsins við fræðileg námskeið sem þeim tengjast í kennaranáminu. Hins vegar kemur fram að mörgum kennaranemum finnst ekki vera um nægilega samfellu að ræða í vettvangs¬náminu. Einnig kemur fram að margir kennaranemar hafa áhyggjur af þekkingu sinni í greininni sem þeir sérhæfa sig í og hæfni sinni til að kenna hana á unglingastigi. Viðtökukennarar eru samkvæmt niðurstöðunum áhugasamir um að taka þátt í samstarfi við Kennaraháskólann með því að vera viðtökukennarar kennaranema. Þeir telja að á síðasta vettvangsnámstímabilinu sé þekking kennaranema í kennslugreininni sem þeir sérhæfa sig í nokkuð góð, svo og í kennslufræði. Einnig telja þeir æskilegt að efla hæfni sína sem viðtökukennara enda kemur fram í svörum um þriðjungs kennaranema, að þeir eru ekki fyllilega sáttir við þá leiðsögn sem þeir fá á vettvangi. Loks benda niðurstöðurnar til þess að samskipti KHÍ og grunnskólanna þurfi að efla, en í rannsókninni kom fram að um þriðjungi viðtökukennara fannst að samskiptin væru ekki nægilega mikil. The major goal of this study was exploring how student teachers and their school advisers experience the practicum part of the teacher education program in the Iceland University of Education. The ...