Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna : áhrif heilsu- og hvatningarverkefna Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á þátttakendur

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur á undan förnum árum lagt áherslu á að hvetja almenning til að stunda reglubundna hreyfingu með fjölbreyttum verkefnum. Heilsu- og hvatningaverkefnið Hjólað í vinnuna rúllaði af stað árið 2003 en Lífshlaupið hófst árið 2008. Þátttaka í þessum verkefnum hefur m...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóna Hildur Bjarnadóttir 1967-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12694
Description
Summary:Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur á undan förnum árum lagt áherslu á að hvetja almenning til að stunda reglubundna hreyfingu með fjölbreyttum verkefnum. Heilsu- og hvatningaverkefnið Hjólað í vinnuna rúllaði af stað árið 2003 en Lífshlaupið hófst árið 2008. Þátttaka í þessum verkefnum hefur margfaldast frá upphafi. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna, hafi áhrif á hreyfingu og ferðamáta þátttakenda. Gögnin sem voru notuð í þessari rannsókn eru fengin úr spurningakönnun sem send var til þátttakenda Lífshlaupsins og Hjólað í vinnuna árið 2011. Niðurstöður benda til þess að þátttaka í heilsu- og hvatningarverkefnum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur áhrif á hreyfingu og ferðamáta þátttakenda. Þátttaka í Lífshlaupinu og Hjólað í vinnuna hefur hvetjandi áhrif á þátttakendur til að auka sína hreyfingu og nota virkan ferðamáta. Þátttakendur hreyfðu sig meira og notuðu virkan ferðamáta oftar á meðan að þeir tóku þátt í verkefnunum og niðurstöður benda til þess að þeir hafi haldið því áfram nokkrum mánuðum eftir þátttöku. Rannsóknin sýnir að heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna, eru öflug lýðheilsutæki sem skila árangri.