Summary: | Þetta lokaverkefni snýst um að teikna og hanna 170m2 einbýlishús úr timbri, með innbyggðum bílskúr á steyptum sökkli. Teikningasett samanstendur af aðaluppdráttum, byggingaruppdráttum, burðarvirkisuppdráttum og lagnateikningum. Í þessari skýrlu sem fylgir með teikningasetti eru Verklýsing, tilboðs/kostnaðáætlun, burðarþolsútreikningar, varmatapsútreikningar, lagnaútreikningar, þak og niðurfallsútreikningar og reikningar um loftun þaks. Einnig er útfyllt umsókn um byggingarleyfi, mæli og hæðarblað ásamt gátlista byggingafulltrúa.
|