Fiskistofa sem þjónustustofnun

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur þessa verkefnis er að kanna þjónustugæði Fiskistofu. Fiskistofa er þjónustu og eftirlitsstofnun sem annast framkvæmd laga og sér um efirlit með stjórn fiskveiða. Leitast er við að svara spurningunni: “Uppfyllir Fiskistofa þau þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Sigurrós Valgeirsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1264
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur þessa verkefnis er að kanna þjónustugæði Fiskistofu. Fiskistofa er þjónustu og eftirlitsstofnun sem annast framkvæmd laga og sér um efirlit með stjórn fiskveiða. Leitast er við að svara spurningunni: “Uppfyllir Fiskistofa þau þjónustugæði sem hún hefur sett sér að uppfylla?” Þjónusta er flókinn ferill sem samanstendur af ætlunarverki, ferli og frammistöðu. Þjónustu er að finna á flestum sviðum samfélagsins en tilkoma hennar getur verið ólík. Bæði einkafyrirtæki og opinberar stofnanir veita þjónustu, þó hún sé byggð á ólíkum grunni. Einkafyrirtækin styðjast við eigið fjármagn og geta valið hvaða þjónustu þau hafa í boði en opinberar stofnanir eru reknar af ríkisfé og þjónusta þeirra er oft tilkomin til að þjónusta lög og reglugerðir þó svo þau hafi eitthvert val um hvaða þjónusta er í boði. Undanfarin ár hefur mikið af þjónustu ríkisins verið færð frá hinu opinbera og yfir til einkafyrirtækja og rekstur ríkisfyrirtækja líkist sífellt meira rekstri einkafyrirtækja. Mikilvægt er fyrir fyrirtæki og stofnanir að gera sér grein fyrir væntingum viðskiptavina sinna til þess að þau geti uppfyllt þær og verið með há þjónustugæði, til þess þurfa þau mótaða stefnu. Fiskistofa hefur nýlega skrifað undir árangurstjórnunarsamning við sjávarútvegsráðuneytið unnið hefur verið að uppfærslu stefnu stofnunarinnar eftir hugmyndafræði stefnumiðaðs árangursmats. Takist innleiðing þess sem skildi er stofnunin með mælitæki á framgang stefnunnar sem hún hefur sett sér, stjórntæki þar sem niðurstöður mælinga gefa vísbendingu um þróun mála og samskiptatæki við starfsfólk. Tilkoma verkefnisins kemur frá mælikvarðanum orðstír í stefnumiðuðu árangursmati Fiskistofu. Framkvæmd var viðhorfskönnun meðal útgerðaraðila sem samanstóð af 24 spurningum sem snúa að þjónustu og ímynd stofnunarinnar. Niðurstöður eru almennt jákvæðar og útgerðaraðilar sáttir við framkvæmd þjónustunnar sem í boði er, ljóst er að Fiskistofa uppfyllir þau þjónustugæði sem hún hefur sett sér. Traust ...