Námspil í samfélagsfræði : svörin ber að vanda - í ferð til Norðurlanda

Spilið ,,Svörin ber að vanda – í ferð til Norðurlanda“ er lokaverkefni Brynju Elínar Birkisdóttur og Hrefnu Ýrar Guðjónsdóttur til B.Ed.-gráðu af Menntavísindasviði Háskóla Íslands vorið 2012. Verkefnið er námspil sem tengir saman samfélagsfræði og leikræna tjáningu og er hugsað sem námsefni í kenns...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Brynja Elín Birkisdóttir 1984-, Hrefna Ýr Guðjónsdóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/12618
Description
Summary:Spilið ,,Svörin ber að vanda – í ferð til Norðurlanda“ er lokaverkefni Brynju Elínar Birkisdóttur og Hrefnu Ýrar Guðjónsdóttur til B.Ed.-gráðu af Menntavísindasviði Háskóla Íslands vorið 2012. Verkefnið er námspil sem tengir saman samfélagsfræði og leikræna tjáningu og er hugsað sem námsefni í kennslu um Norðurlöndin. Við vinnslu verkefnisins og gerð spilsins voru markmið Aðalnámskrár grunnskólans (2007) höfð að leiðarljósi, ásamt öðrum heimildum um kennslu og kennsluaðferðir. Spil þetta er hugsað sem námsefni fyrir 6. bekk og er ætlað að hjálpa nemendum að rifja upp, dýpka og festa í minni þekkingu um Norðurlöndin. Auk þess er það gagnlegt sem hjálpartæki við leikræna tjáningu. Spilið samanstendur af átta spjöldum, einu fyrir hvert Norðurlanda. Þrír áfangastaðir eru í hverju landi þar sem leysa þarf verkefni, ýmist almennar spurningar um landið sem við á, leikræn tjáning eða svokallað lukkuhjól þar sem eitt verkefni nemenda ræðst af tilviljun. Spilið var prófað með tveimur nemendum 6. bekkjar og fjórum vinum þeirra úr 5. – 7. bekk. Spilið virtist þjóna tilgangi sínum og voru nemendur sammála um að þeir hefðu ekki einungis haft gaman af spilinu heldur hefðu þau einnig öðlast þekkingu á Norðurlöndunum. The game “Watch your answers – Journey to the Nordic countries” is Brynja Elín Birkisdóttir and Hrefna Ýr Guðjónsdóttir’s final project for a B.Ed. degree from the School of Education Studies at the University of Iceland. The project, an educational board game connecting social sciences and drama, is intended as a teaching material for use when teaching about the Nordic countries. In the making of the project, the general national curriculum, as well as other references on educational methods, were used as a guiding light. The game is recommended as a teaching material for students in 6th grade (11–12 years). The game is intended to help students recall, expand and retain their knowledge about the Nordic countries, as well as assisting in drama training. The game consists of playing cards, one for each of the ...